#bluedragon

Ljúffengar Satay núðlur á korteriÞað er svo ósköp freistandi að sækja tilbúinn mat þegar við erum í tímaþröng eða bara löt. Það er hins vegar afar fljótlegt að græja gómsæta núðlurétti heima og ég fullyrði að þeir séu ekkert síðri en það sem hægt sé að taka með sér heim. Þessi er einn af okkar uppáhalds og það tekur enga stund að útbúa hann. Ég skipti oft út grænmetinu fyrir það sem ég á til í kælinum og það er ekkert heilagt í magni á neinu. Satay sósan er algjört uppáhald á heimilinu og ég á hana yfirleitt alltaf til ásamt núðlum. Restina er hægt að vinna í kringum!
Fljótlegar hoisin núðlur með tófú & grænmetiNúðluréttir eru einfaldir, bragðgóðir og almennt frekar ódýrir réttir. Þessi réttur er svo sannarlega einn af þeim og sérlega gott að útbúa til þess að taka með sér í nesti í vinnuna t.d. Ég nota hér tófú með núðlunum en ég er aðeins farin að fikra mig áfram með eldmennsku á því. Tófú er þægilegur og ódýr valkostur og hentar sérstaklega vel í asíska rétti. Það virkar í raun eins og svampur og hægt að nota hvaða marineringar og sósur sem er með því. Hoisin sósa eins og ég nota hér hentar einstaklega vel, ég valdi að hafa fíngerðar eggjanúðlur í réttinum og vel af grænmeti, sannarlega fátt sem getur klikkað!
„General Tso‘s“ kjúklingurÞessi kjúklingaréttur er kenndur við hershöfðingjann Zuo Zongtang sem alltaf var kallaður General Tso í Bandaríkjunum á nítjándu öld. Rétturinn fékk þetta nafn því umræddum hershöfðingja þótti hann góður! Ég hafði reyndar ekki hugmynd um þessa sögu fyrr en ég gúglaði hana en það var hún Tobba vinkona mín sem sagði við mig fyrir lööööööngu að ég þyrfti að gera svona uppskrift fyrir bloggið! Hér er hún því LOKSINS komin fyrir ykkur öll að njóta og ég vildi að ég hefði prófað fyrr, þetta svo rugl gott!
Vaffla með laxiHrísgrjónavaffla með marineruðum laxi og majónesi. Frábær forréttur eða smáréttur með japönskum mat.
Ferskar og fljótlegar satay kjúklingavefjurÞað verður allt svo dásamlegt sem sett er inn í vefjur og þessar eru engin undantekning. Sósurnar frá Blue Dragon koma með asískt yfirbragð í matseldina og Satay sósan frá þeim er sjúklega góð og hægt að nota á fjölbreyttan hátt. Ég nota hana almennt mikið í kjúklingarétti en hérna ákvað ég að útbúa vefjur sem eru í senn fljótlegar, bragðgóðar og fallegar! Kjúklingurinn passar ótrúlega vel með sósunni og ferskt og stökkt grænmetið er fullkomið með. Það tekur enga stund að útbúa vefjurnar og þær eru líka alveg frábærar í nestisboxið. Blue Dragon Satay sósan fæst í öllum helstu matvöruverslunum.
Poke skál með marineruðum laxi, edamame baunum og chili mæjóPoke skálar eru upprunalega frá Hawaii en þær eiga það til að blandast saman við japanska matargerð líkt og sushi. Poke er í raun hrár fiskur skorinn í bita og maríneraður en það þekkist einnig að hafa annað prótín í skálunum. Það er hægt að setja saman sína skál eftir eigin hentisemi og þetta er mín útgáfa sem ég deili með ykkur. Sítrónusafinn í maríneringunni veldur því að laxinn eldast í rauninni án þess að nota hita líkt og við ceviche gerð. Það er smá dútl í kringum þetta en sannarlega þess virði.
Tælenskt regnbogasalat með trylltri dressinguÞetta salat er svo dásamlegt, stútfullt af næringu og það er sérlega þægilegt að getað sleppt innihaldsefnum eða skipt þeim út. Áherslan er lögð á sem flesta liti og dressingin setur punktinn yfir i-ið. Það er sérlega fallegt á borði og ég mæli eindregið með því að bera það fram í matarboðum eða saumaklúbbnum t.d.
Ljúffeng humarsúpaKlassísk og ljúffeng humarsúpa og það besta við hana er að hún er jafnvel ennþá betri daginn eftir. Þá er gott að sleppa því að setja humarinn út í súpuna og setja hann ofan í áður en þið berið hana fram. Þessi humarsúpa er frábær forréttur, en ef að þið viljið meiri mátlítð úr súpunni þá mæli ég með að bæta við meiri humar í súpuna. Mér finnst humarkrafturinn frá Oscar og smá red curry frá Blue dragon setja punktinn yfir i-ið og gefa súpunni svo gott bragð.
1 2 3 15