#létturréttur

Tataki-nautakjöt að ítölskum hættiÁttu von á gestum og veist ekki hvað þú átt að bera á borð? Þessi miðjarðarhafsútgáfa af japanskri hefð á eftir að vekja athygli. „Tataki“ er hefðbundin japönsk eldunaraðferð þar sem kjötsneiðar eru kryddaðar í bragðmikilli marineringu áður en þær eru steiktar við háan hita. Útkoman er ljúffengt karamelíserað yfirborð með safaríkri og létteldaðri miðju.
LinsubaunahummusLinsubaunir eru fullar af vítamínum og steinefnum og auðga mataræði þitt með hollum skammti af jurtaprótíni og trefjum.
Roast beef vefjaSælkeravefja með vel af roast beef kjöti og Heinz Sandwich spread sósu.
Lífrænt hrákex úr hörfræjumSíðustu vikur hef ég verið glúteinlaus og að prófa mig áfram með hráfæði og alltíeinu poppaði upp minning um hrákex með hörfræjum. Mig minnir að ég hafi smakkað svona kex í fyrsta sinn á gamla Gló veitingastaðnum þegar þau buðu alltaf uppá hráfæðirétt svo seinna fór mamma að spreyta sig á að gera svona kex…. þetta var mögulega áður en ég fékk áhuga á eldamennsku haha. Jæja það var kominn tími á að endurskappa þessa minningu í eldhúsinu mínu. Ég nota þurkofn til að gera hrákexið en það er líka hægt að nota venjulegan bakaraofn. Ég var svo heppin að eignast þurkofn eftir að góð vinkona mín hún Audrey tók til í geymslunni og spurði mig hvort ég vildi eiga þurkofninn sem hún notaði aldrei. Hingað til hefur hann aðallega verið tekinn fram á sumrin til að gera grænkálssnakk en hann hefur komið sér einstaklega vel síðasta mánuðinn og er mögulega í stanslausri notkun. Þetta kex er eitt af því sem kemur úr þurrkofninum í hverri viku núna.
Kjúklingur með parmaskinku og mozzarellaKjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni. Nammi!
Parmesanhjúpuð langaSælkerahjúpur úr majónesi og parmesanosti sem passar með öllum hvítum fisk. Einfalt og gott!
Tígrisrækju TostadasAlmáttugur minn hvað þetta var ferskt og gott og frábær tilbreyting frá haustmatnum sem ég er búin að vera með undanfarið! Tígrisrækjur eru alveg svakalega góðar af grillinu!
SilungssneiðarÞað þarf ekki að vera flókið til að vera gott! Ég elska þegar eitthvað svona einfalt slær algjörlega í gegn. Það tekur enga stund að smella í þessa dásemd og til þess að flýta enn frekar fyrir getið þið keypt niðurskorinn silung/lax. Rjómaostur með lauk fullkomnar þetta síðan allt saman!
Kjúklingalæri með sítrónu & kramdar kartöflurHér kemur uppskrift að gómsætum ofnbökuðum kjúklingalærum með ferskum kryddjurtum, hvítlauk, sítrónu og chili. Kjúklingurinn er borinn fram með krömdum kartöflum, kaldri parmesan sósu og fersku salati. Ó svo ferskt og gott!
Morgunverður meistaransLúxus morgunverður þarf ekki alltaf að kosta mikla fyrirhöfn. Þessi hérna samsetning myndi sóma sér hvar sem er, hvenær sem er og ekki er verra að þetta er allt hollt, gott og næringarríkt!
HollustuskálÞað er svo geggjað að geta útbúið sína eigin skyrskál heima og möguleikarnir eru endalausir! Þetta er alls ekki eins flókið og margir halda svo lengi sem þið eigið réttu hráefnin til! Ég hugsa að það taki í mesta lagi um 5 mínútur að útbúa eina eða fleiri svona skálar heima, líklega styttri tími en það tekur að bíða í röð á sölustað!
1 2 3 14