fbpx

Fljótlegar hoisin núðlur með tófú & grænmeti

Núðluréttir eru einfaldir, bragðgóðir og almennt frekar ódýrir réttir. Þessi réttur er svo sannarlega einn af þeim og sérlega gott að útbúa til þess að taka með sér í nesti í vinnuna t.d. Ég nota hér tófú með núðlunum en ég er aðeins farin að fikra mig áfram með eldmennsku á því. Tófú er þægilegur og ódýr valkostur og hentar sérstaklega vel í asíska rétti. Það virkar í raun eins og svampur og hægt að nota hvaða marineringar og sósur sem er með því. Hoisin sósa eins og ég nota hér hentar einstaklega vel, ég valdi að hafa fíngerðar eggjanúðlur í réttinum og vel af grænmeti, sannarlega fátt sem getur klikkað!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Núðluskál
 1 stk kubbur tófú (firm, fæst í öllum búðum í grænmetiskælinum)
 1 msk maizena mjöl
 200 g fínar eggjanúðlur frá Blue Dragon
 1 msk sesamolía frá Blue Dragon
 1 stk geiralaus hvítlaukur, fínt saxaður
 4 stk cm bútur af fersku engiferi, fínt saxaður
 1 stk vorlaukar, skerið hvíta hlutann frá og skerið í þunnar sneiðar
 1 stk lítill laukur, þunnt sneiddur
 ½ stk stór rauð paprika, skorin í fíngerða strimla
 ¼ stk lítill hvítkálshaus, þunnt sneiddur
 ristuð sesamfræ
Hoisin sósa - marinering
 2 msk dökk sojasósa (eða venjuleg)
 2 msk japönsk sojasósa frá Blue Dragon
 2 msk hoisin sósa frá Blue Dragon
 1 msk hrísgrjónaedik frá Blue Dragon
 1 msk sriracha sósa
 1 msk hunang

Leiðbeiningar

1

Takið tófúið úr plastinu og skerið það langsum í 3 sneiðar. Setjið þykkt lag af eldhúsbréfi eða samanbrotið hreint viskastykki á bretti. Raðið tófúsneiðunum á og leggið annað viskastykki eða pappír yfir. Setjið eitthvað mjög þungt ofan á, ég notaði steypujárnspott og lóð. Pressið tófúið í 30 mín, ágætt er að færa til eða skipta um pappír þegar helmingurinn af tímanum er liðinn. Með þessu er vökvinn pressaður úr því og það verður þá stökkara og tekur betur við marineringu.

2

Setjið öll innihaldsefni í sósuna í skál og setjið til hliðar.

3

Takið þessar 3 sneiðar af tófú og skerið þær í 1cm kubba og setjið í skál. Setjið 2 msk af sósunni og veltið tófúinu upp úr henni. Látið marinerast í 15 mín. Gott er að nota tímann þá til þess að skera grænmetið.

4

Stráið maizena mjölinu yfir tófúið og veltið saman.

5

Setjið sesamolíu á pönnu og hitið vel. Steikið tófúið á pönnunni þar til það fer að brúnast, setjið til hliðar.

6

Setjið smávegis af sesamolíu á pönnuna og steikið engiferið, hvítlaukinn, hvíta hluta vorlauksins og laukinn þar til laukurinn fer að mýkjast.

7

Bætið þá paprikunni, hvítkálinu, græna hlutanum af vorlauknum (gott að skilja smá eftir sem skraut ef vill) og gulrótinni saman við og steikið áfram í nokkrar mín.

8

Sjóðið núðlurnar í 4 mín og bætið út á pönnuna ásamt sósunni og steikta tófúinu. Smakkið til, ef þið viljið er hægt að bæta við smávegis af soja- eða hoisin sósu.

9

Berið fram með ristuðum sesamfræjum og vorlauk.

Uppskrift eftir Völlu Gröndal

MatreiðslaMatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir