#mozzarellaostur

Litlir ostabakkar10 litlir bakkar - Það má raða hverju sem hugurinn girnist í boxið en ég segi það þarf að vera eitthvað kex, kjöt, ostur, ber og sætt, þá eruð þið í góðum málum!
Kjúklingur með parmaskinku og mozzarellaKjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni. Nammi!
Einfalt og gott Gnocchi pasta með NdujaÉg lofa að þennan rétt tekur ekki nema max 10 mínútur að gera og samt er hann afar bragðmikill og góður. Mæli með að hafa með honum gott hvítlauksbrauð og salat og nóg af sætum drykk eða mjólk til að drekka með því eins og ég segi þá er hann sterkur.
Eðlu burritoHver elskar ekki eðlu eða burrito? Því ekki þá að sameina þessar dásemdir og gera bara eðlu burrito ?
Fyllt brauðMjög gómsætt fyllt brauð eða „Pull apart“ brauð. Fullkominn puttamatur og tilvalið að bera fram í þeim veislum eða matarboðunum sem framundan eru. Fyllingin er einföld og gómsæt en hún samanstendur af Philadelphia rjómaosti með graslauk, mozzarella osti, cheddar osti, hvítlaukssmjöri og graslauk.
Djúsí og einföld BBQ pizzaPizza með kjúklingi í BBQ sósu, rjómaosti, rifnum osti, nachosi, rauðlauk og toppuð með avókadó, tómötum og kóríander. Þetta er stórkostleg blanda sem svíkur engan.
Quesadilla hringurFylltar tortillur með kjúkling, beikoni, tómötum, blaðlauk, salsasósu og nóg af osti. Tortillurnar mynda kramarhús og er þeim svo raðað upp í hring og bornar fram með avókadó sósu. Passar sérlega vel með ísköldum bjór eða drykk.
Ostasnúðar með pestó og parmesan ostiÞað er eitthvað svo dásamlegt við snúða hvort sem þeir eru sætir eða meira matarkyns. Þessir pestósnúðar með parmesan eru fullkomnir á veisluborðið, sem helgarbaksturinn eða í nestisboxið.
1 2