Vegan og glútenlaus sveppasósa“Hún er geðveik mamma, þú verður að gera uppskrift af henni” voru orð sonar míns þegar hann fékk þessa með kvöldmatnum. Hefði ekki getað óskað mér betri viðbrögð enda eru börn bestu dómararnir. Hreinskilin og kröfuhörð.
Þetta er sveppasósa sem er létt í sér og minnir á gravy. Hún er að mestu lífræn, fyrir utan sveppina sem ég fann ekki lífræna, án aukaefna og glútenlaus. Passar vel með hnetusteik, með grænmetisbuffi, kartöflumúsinni… og ef þú spyrð krakkana mína þá má borða hana eintóma.
Hveiti er oft notað í sósur til að þykkja þær en hér nota ég kjúklingabaunamjöl sem inniheldur ekki glúten en virkar eins til þykkingar. Mörgum til mikillar gleði bætir það líka próteini í sósuna.Kasjúostsfylltar eggaldinrúllur í tómatsósuEggaldinrétturinn sem slær alltaf í gegn. Rétturinn sem mér finnst svo gaman að bjóða uppá í matarboðum. Allir elska hann, bæði börn og fullorðnir og það besta að það er hægt að preppa hann snemma. Uppskriftin er einföld þó það fylgi henni smá dútl en hún samanstendur af kasjúosti, eggaldinsneiðum og tómatsósu sem svo er raðað saman í form.
Skrefin eru frekar óháð og auðvelt að undirbúa fyrr um daginn eða jafnvel daginn áður sem getur komið sér vel fyrir matarboð í opnu eldhúsi eða bara fyrir okkar dæmigerða upptekna hversdag. Ég allavega elska að geta flýtt fyrir mér.
Rétturinn getur staðið einn og sér en ég hef líka verið að bera hann fram með kartöflum í ofni ásamt salati og um daginn hafði ég hvítlauksbrauð með. Kryddraspinn er hægt að blanda útí hvítlauksolíu til að setja á brauð og hita það í ofni fyrir stökkt hvítlauksbrauð.Pítur með shawarma kjúklingabaunafyllingu og heimagerðri hvítlauksssósuÉg er reglulega með kjötlausan kvöldmat sem er nú ekkert fréttnæmt í sjálfu sér en ég veit hins vegar fátt betra en þegar hann er einfaldur og fljótlegur líka. Kjúklingabaunir í dós eru í miklu uppáhaldi vegna þess að þær bjóða upp á endalausa möguleika. Hvort sem það er hummus, pottréttir, fyllingar í vefjur og pítur, ristaðar ofan á salat eða sem snakk og jafnvel sem uppistaða í köku þá eru þær bara bestar.
Þessar pítur eru brjálæðislega einfaldar, bragðgóðar og fljótlegar. Shawarma krydd fæst í flestum verslunum en það er líka hægt að gera sína eigin blöndu ef vill. Svo er vissulega hægt að nota hvaða sósu sem er en þessi tiltekna hvítlaukssósa er í miklu uppáhaldi líka og á hana oft til í loftþéttu boxi í kælinum. Ítalskur pönnuréttur með smjörbaunum, svörtum ólífum og ferskri basilikuVið höldum áfram að vinna með fljótlega vegan rétti og þessi er algjörlega himneskur. Hráefnin eru hvorki mörg né flókin og það tekur enga stund fyrir þennan að verða tilbúinn.
Ég nota hérna smjörbaunir eða cannellini baunir í dós, sem ég sé því miður ekki oft á borðum en þær eru frekar hlutlausar á bragðið og henta því vel í allskyns pottrétti og taka í sig bragðið af kryddum og öðrum hráefnum. Þær eru mjög næringarríkar, innihalda mikið af trefjum, kalki, járni o.fl.
Með baununum í réttinum eru meðal annars ítölsk krydd, hvítlauk, svartar ólífur, næringarger og kókosmjólk. Samsetning sem er algerlega ómótstæðileg með nýbökuðu ciabatta eða súrdeigs brauði. Indverskur sætkartöflu- og blómkáls baunapottréttur með hýðishrísgrjónum – veganÞað er bara komið að því, haustið handan við hornið, skólarnir að byrja og rútínan að taka við. Einhverjir dusta rykið af löngu gleymdum áramótaheitum og vetrarmaturinn fer hægt og rólega að taka yfir létt salöt og grillrétti.
Pottréttir eins og þessi eru í algjöru uppáhaldi hjá mér. Ekki bara af því að hann er ótrúlega bragðgóður og eldar sig næstum sjálfur, heldur er þetta alveg ótrúlega ódýr réttur, næringarríkur og passar akkúrat inn í kjötlausu dagana þar sem hann er vegan. Ég tók reyndar saman hvað innihaldsefnin gætu kostað og í allan réttinn gæti það verið um 1500 krónur og þá er ennþá afgangur af nokkrum innihaldsefnum. Mér reiknast til að skammtarnir séu um 8 og er þetta því líklega með hagkvæmustu kostum sem hægt er að bjóða upp á í kvöldmat. Að auki frystist hann mjög vel og upplagt að setja afganga í frysti og taka síðar með í nesti. Mexíkóskt quinoa salatQuinoa er sennilega uppáhalds „kornið“ mitt. Tæknilegar séð er það reyndar ekki korn heldur fræ. Quinoa er glútenlaust, próteinríkt og inniheldur trefjar. Það hefur nokkuð hlutlaust bragð sem bíður uppá allskonar möguleika fyrir kryddskúffuna.
Hér höfum við mexíkó quinoa sem er ótrúlega gott sem meðlæti, sem mexíkó salatgrunnur, sem fylling inní burritovefjuna eða t.d. til að toppa bakaða sæta kartöflu. Quinoað má borða bæði heitt og kalt sem getur verið hentugt fyrir nestið eða flótlega afgangamáltíð. Þessi hefur verið í uppáhaldið hjá okkur lengi, bæði hjá börnum og fullorðnum.Ljúffengt og heilnæmt baunasalatÞetta litríka baunasalat er ekki bara ljúffengt, heldur er það líka stútfullt af næringu. Hrásalat með raw hampfrædressinguRaw hrásalat, eða hrá-hrásalat! Hér erum við allavega með hollari týpuna að hrásalati en dressingin kemur manni skemmtilega á óvart og gefur þessa creamy áferð með smá sætu bragði og minnir óneytanlega á klassískt hrásalat með mæjó, nema ferskara…. æji þið skiljið þegar þið prófið.
Fullkomið sem hliðarsalat með nánast hverju sem er.
Færslan er unnin í samstarfi við Beutelsbacher á íslandi. Eplaedikið frá Beutelsbacher er sennilega lykilhráefnið til að fá þetta “mæjó” bragð.
Til að bæta því við þá hafði maður minn orð á því hversu geggjuð þessi dressing væri… sem mér fannst ótrúlega skemmtilegt þar sem hann þykist ekki borða rúsínu, sinnep né edik. Lol. 😉Heitar krossbollur með kanil, vanillu og dökku súkkulaðiHot cross buns eða heitar krossbollur eru bakaðar víða um heim um páskana og yfirleitt þá á föstudaginn langa. Þær koma í allskonar útfærslum, algengt er að þær innihaldi rúsínur, sultaða ávexti, appelsínubörk, súkkulaði eða hnetur. Þær tengjast bæði í kristni en einnig í heiðinn sið. Krossinn getur táknað kross Krists og vísað þannig í krossfestinguna. Í heiðnum sið táknar krossinn fjögur kvartilaskipti tunglsins og eru bollurnar fórn til gyðjunnar Eostre sem er gyðja vors og dögunar.
Þessar eru í vegan útgáfu með dökku súkkulaði, kanil og ekta vanillukornum. Þær passa sérlega vel í páskabrönsinn eða páskakaffið. Hægt er að leika sér endalaust með uppskriftina, setja rúsínur til móts við súkkulaðið, sleppa kanil og setja rifinn appelsínubörk osfrv.
Þær passar mjög vel í páskabrönsinn eða páskakaffið og eru bestar ylvolgar með smjöri.
“1001 nótt” smoothie skálÞað eru örugglega einhverjir sem þekkja nafnið en þessi smoothie skál er innblásin af smoothie af matseðlinum hjá ísey skyrbar. Þetta er smoothie sem er vinsæll á heimilinu en það getur verið dýrt að kaupa tilbúinn smoothie fyrir 4 manna fjölskyldu oft í mánuði.
Ísey notar eplasafi úr kreistum eplum í smoothie-inn en til einföldunar höfum við hér heima haldið okkur við eitt eldhústæki til að græja fram þennan smoothie og notað heila appelsínu í staðinn fyrir eplasafa og það kemur alls ekki niður á bragðinu.
Það getur auðvitað verið ótrúlega þægilegt og fljótlegt að kaupa sér tilbúna smoothieskál á ferðinni en það eru allskonar kostir sem fylgja því að gera sér smoothieskál heima, það er bæði ódýrara en einnig gefur það svigrúm til að velja hráefnið og gera t.d. lífrænni útgáfu eins og hér að neðan og þú getur toppað skálinu með þínu eftirlæti.Vegan Paris-Brest bollur með pralíni og vanillurjómakremiParis-Brest er einn allra besti eftirréttur sem til er á jörðinni. Eða það finnst mér að minnsta kosti. Eftirrétturinn er upprunninn í Frakklandi eins og nafnið gefur til kynna og eru til ýmsar útgáfur af honum.
Yfirleitt er þetta vatnsdeig sem mótað er í hring og fyllt með pralín og vanillukremi (Crème Pâtissière). Það er eitthvað við þessa pralín-vanillukrems blöndu sem er algerlega ómótstæðilegt og það er ekki oft sem hægt er að nálgast þennan eftirrétt á Íslandi.
Ég var heillengi að prófa mig áfram með gerð þessarar bollu og gerði ótal útgáfur af henni. Þessi útgáfa kom lang best út. Bollan sjálf er úr smjördeigi sem er nánast án undantekninga vegan. Heimagerða pralínið er gert úr ristuðum heslihnetum og möndlum og vanillukremið úr haframjólk og hafrarjóma ásamt góðri vanillu og vegan smjöri. Þessi samsetning er algerlega himnesk og ég skora á ykkur að prófa þessa dýrð!LinsubaunahummusLinsubaunir eru fullar af vítamínum og steinefnum og auðga mataræði þitt með hollum skammti af jurtaprótíni og trefjum. Smörrebröd með marineruðum gulrótum og lífrænni graflaxsósuÍ fyrra smakkaði ég graflaxsósu í fyrsta sinn og ég er mikil sinnepskona og elska dill svo þetta var nýtt og skemmtilegt bragð fyrir mér. Þessi sósa virðist tengjast hátíðunum þó ég þekki þessa hefð alls ekki en mig langaði að gera lífræna graflaxsósu og prófa mig áfram með hátíðlegt smörrebröd. Hér erum við með smörrebröd, sem væri að sjálfsögðu hægt að bera fram sem minni snittur, með grænum blöðum, avocado, marineruðum gulrótum, capers og lífrænni graflaxsósu. Döðlusíróp er eitthvað sem ég uppgötvaði nýlega og ég elska að nota það í dressingar svo það lá beinast við að nota það. Ég sæki innblástur í vegan graflax sem virðist vera vinsæll fyrir jólin nema ég hef ekki hugmynd um það hvernig graflax er á bragðið svo alls ekki búast við því bragði, en mér fannst bara svo ótrúlega skemmtileg hugmynd að marinera gulrætur með brögðum sem ég elska og toppa svo með sætri lífrænni graflaxsósu með döðlusíróKjúklingabauna taco með avocado-límónu kremi og chili krönsiÁ mínu heimili er mexíkóskur matur líklega sá allra vinsælasti af öllu sem boðið er upp á. Og hann er svo sannarlega oft á boðstólum í allskonar útgáfum. Það hjálpar vissulega til hversu ótrúlega fljótlegt það er að útbúa hann. Yfirleitt eru þetta allra handa tortillur og taco kökur fylltar með öllu mögulegu. Fer oft eftir því hvað er til í kælinum og hvaða sósur eru til. Ég á alltaf til kjúklingabaunir í dós en mér finnst ótrúlega þægilegt að grípa í þær þegar ég nenni ekki að hafa kjöt. Síðan eru þær líka hræ ódýrar. Ég geri líka yfirleitt mitt eigið taco krydd en það er ótrúlega einfalt og miklu ódýrara og hollara en það sem til er í bréfum. Og síðan, það allra mikilvægasta í heimagerða taco bransanum er að hafa eitthvað krönsí með, hvort sem það eru nachos flögur eða annað snakk. Alveg sjúklega gott og passar fullkomlega með þessu taco-i. Kasjúhnetusmurostur með graslaukHér er á ferð algjörlega ruglaður smurostur, mínir bragðlaukar segja að hann toppi alla aðra smurosta hvort sem þeir séu vegan eða ekki. Ostinn má smyrja á brauðmeti eða kex eða setja útá pastað. Hann er æðislega mjúkur og fer í raun vel með nánast hverju sem er og hægt að nota hann sem ídýfu fyrir grænmeti eða snakk á góðu kósýkvöldi, já eða eins og á bakkanum á myndinni. Það besta við ostinn er að hann inniheldur fá hráefni og er án allra aukaefna.
Uppskriftin er frekar stór því mér finnst bara ekki taka því að gera minni uppskrift þar sem smurosturinn hverfur fljótt hér heima og það tekur svolítinn tíma að bíða eftir að osturinn verði tilbúinn. En það hefur einnig áhrif að mér finnst oft auðveldara að fá réttu áferðina í blandaranum þegar ég hef uppskriftina stærri en blenderkannan mín er frekar víð. Það er vel hægt að helminga uppskriftina í fyrstu tilraun.
Í uppskriftinni notast ég við Probi mage góðgerla sem eru bragðhlutlausir sem hjálpa ostinum að gerjast og fá þetta súra bragð sem einkennir smurosta. Ég læt ostinn gerjast í þurrkofni en einnig er hægt að leyfa honum að gerjast á hlýjum stað án þurrkofns (t.d. í skáp fyrir ofan ísskápinn, þarf verður oft hlýtt). Það verður aðeins öðruvísi bragð, örlítið súrara bragð.
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Smelltu hér til að kynna þér skilmála síðunnar.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-functional
11 months
The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional".
cookielawinfo-checkbox-necessary
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
viewed_cookie_policy
11 months
The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.