#oatly

Vegan Paris-Brest bollur með pralíni og vanillurjómakremiParis-Brest er einn allra besti eftirréttur sem til er á jörðinni. Eða það finnst mér að minnsta kosti. Eftirrétturinn er upprunninn í Frakklandi eins og nafnið gefur til kynna og eru til ýmsar útgáfur af honum. Yfirleitt er þetta vatnsdeig sem mótað er í hring og fyllt með pralín og vanillukremi (Crème Pâtissière). Það er eitthvað við þessa pralín-vanillukrems blöndu sem er algerlega ómótstæðilegt og það er ekki oft sem hægt er að nálgast þennan eftirrétt á Íslandi. Ég var heillengi að prófa mig áfram með gerð þessarar bollu og gerði ótal útgáfur af henni. Þessi útgáfa kom lang best út. Bollan sjálf er úr smjördeigi sem er nánast án undantekninga vegan. Heimagerða pralínið er gert úr ristuðum heslihnetum og möndlum og vanillukremið úr haframjólk og hafrarjóma ásamt góðri vanillu og vegan smjöri. Þessi samsetning er algerlega himnesk og ég skora á ykkur að prófa þessa dýrð!
Kjúklingabauna taco með avocado-límónu kremi og chili krönsiÁ mínu heimili er mexíkóskur matur líklega sá allra vinsælasti af öllu sem boðið er upp á. Og hann er svo sannarlega oft á boðstólum í allskonar útgáfum. Það hjálpar vissulega til hversu ótrúlega fljótlegt það er að útbúa hann. Yfirleitt eru þetta allra handa tortillur og taco kökur fylltar með öllu mögulegu. Fer oft eftir því hvað er til í kælinum og hvaða sósur eru til. Ég á alltaf til kjúklingabaunir í dós en mér finnst ótrúlega þægilegt að grípa í þær þegar ég nenni ekki að hafa kjöt. Síðan eru þær líka hræ ódýrar. Ég geri líka yfirleitt mitt eigið taco krydd en það er ótrúlega einfalt og miklu ódýrara og hollara en það sem til er í bréfum. Og síðan, það allra mikilvægasta í heimagerða taco bransanum er að hafa eitthvað krönsí með, hvort sem það eru nachos flögur eða annað snakk. Alveg sjúklega gott og passar fullkomlega með þessu taco-i.
Dúnmjúkir & litríkir vegan kleinuhringirÉg hef oft talað um það að hvað mér finnst gaman að gera djúsí og góðar vegan uppskriftir. Í kringum mig eru all mörg börn sem hafa ýmis óþol og ofnæmi og þá er lang einfaldast að útbúa vegan gúmmelaði fyrir krakkana og öll geta þá fengið sér það sama. Ég gerði þessa kleinuhringi um daginn og þeir komu alveg ótrúlega skemmtilega á óvart. Þeir eru mjúkir og bragðgóðir og hægt að leika sér endalaust með skraut og glassúr. Í stað venjulegrar mjólkur notaði ég Oatly haframjólk og það kom vel út, bæði í kleinuhringjunum sjálfum sem og glassúrnum sem ég dýfði þeim í. Þessa verðið þið bara að prófa!
Fljótleg bananakaka með hnetusmjörskremiVel þroskaðir bananar eru auðvitað algjörlega stórkostlegt hráefni í bakstur og ég nýti þá alveg óspart ef bananar eru við það að daga uppi hjá mér. Þessi kaka er ein af okkar uppáhalds á heimilinu og er hér í vegan útgáfu. Það er alveg ótrúlega fljótlegt að henda í þessa og í raun þarf bara eina skál og eina sleif til þess að hræra í deigið. Hún er lungamjúk og djúsí og það er enginn sem fattar að hún sé án dýraafurða þar sem hún lyftir sér mjög vel og molnar ekki eins og margar vegan kökur eiga það til að gera. Ég geri annað hvort rjómaostakrem með henni eða hnetusmjörskrem og það síðarnefnda varð fyrir valinu í dag. Hún helst lengi mjúk og er alveg tilvalin í nestiboxið!
Djúsí möndlusnúðar með rjómaostakremiVið sem kunnum að meta klassískar möndlukökur með bleiku kremi og allra handa snúða þurfum að baka þessa ansi reglulega! Algjörlega ómótstæðilegir með góðu möndlubragði og djúsí marsípan fyllingu. Snúðarnir eru vegan og ég nota Oatly haframjólkina í þá sem gerir þá alveg fullkomna. Svo auðvitað er haframjólkin ómissandi með nýbökuðum snúðunum en þá er best að hafa hana alveg ískalda, helst við frostmark. Þessa verðið þið bara að prófa!
Silkimjúkur Oatly jarðarberjaísJarðarberjaís er einn af mínum uppáhalds en undanfarið hefur mér fundist erfitt að finna góðan jarðarberjaís og hvað þá í vegan útgáfu. Þessi ís er mjög auðveldur í gerð og hentar jafn vel í ísform sem og skálar. Ég nota jarðarberjadropa til þess að ýkja jarðarberjabragðið en þess þarf ekki frekar en þið viljið. Persónulega finnst mér ég ekki þurfa íssósu en gott ískex og fersk jarðarber eru ljómandi góð með ísnum. Oatly VISP þeytirjóminn hentar mjög vel í ísgerð og það er engin þörf á því að bæta einhverju öðru en bragðefnum, súkkulaði eða ávöxtum t.d. Hann hentar líka flestum þar sem hann er vegan og fer vel í litla maga.
Möndlu- og súkkulaði cantucci með kaffinuÞessar cantucci kökur sem mér skilst að maður eigi ekki að kalla biscotti það sem það er víst bara „smákaka“ á ítölsku, eru algjörlega dásamlegar með góðum kaffisopa. Þær eru vegan og ótrúlega fljótlegt að henda í þær. Geymast síðan vel og haldast lengi góðar. Milt möndlubragðið fer sérlega vel með súkkulaðinu og ég mæli eindregið með því að dýfa þeim í góðan kaffibolla eins og latté með Oatly ikaffe haframjólkinni.
Hnetusmjörsklattar með dökku súkkulaðiÞessir klattar eru alveg ótrúlega bragðgóðir, einfaldir og fljótlegir. Allt í einni skál, óþarfi að kæla deigið og baksturstíminn er stuttur. Þeir eru vegan og henta því öllum sem forðast dýraafurðir og þeim sem eru annað hvort með mjólkur- eða eggjaofnæmi. Bragðlausa kókosolían frá Rapunzel er ótrúlega fjölhæf og hentar jafn vel í bakstur, hvort sem er smákökur eða annað bakkelsi, hvet ykkur til að prófa hana næst þegar á að baka eitthvað gómsætt.
Einföld og fljótleg döðlukaka með kanilÞessi kaka er alveg fullkomin sunnudagskaka sem gott er að skella í með stuttum fyrirvara. Það er mjög einfalt að laga deigið og það þarf ekkert að bíða eftir því að hún kólni alveg. Krökkunum finnst þessi alveg dásamleg sem og okkur fullorðna fólkinu. Kakan er án dýraafurða og henta vel þeim sem sneiða hjá þeim.
Pralín Panna Cotta með rjóma og ferskum hindberjumÞessi frábæra uppskrift er í senn fáránlega einföld, sparileg og að auki vegan. Það mun ekki nokkur sála átta sig á því hvað það tók stuttan tíma að gera þennan eftirrétt. Agar agar duftið er ótrúlega skemmtileg hráefni sem gaman er að leika sér með í stað matarlíms. Það þarf mjög lítið af því en ólíkt matarlími þarf það að sjóða með vökvanum í smá stund. Nirwana súkkulaðið frá Rapunzel er fullkomið í þennan rétt þar sem það er ljósara en margt vegan súkkulaði og fyllingin er algjörlega himnesk.
Hveitilaus fallin súkkulaðikaka með rakri miðjuÉg elska svona fallnar kökur sem eru fallega ljótar, því oft eru þær einfaldlega bestar. Hér er ég með eina dásamlega góða köku sem er í senn einföld en afar ljúffeng, svona kaka kallast oft torte á ensku en þá er verið að vísa til fallinnar súkkulaðiköku. Yfirleitt viljum við ekki að kökurnar okkar falli eftir bakstur en í þessu tilfelli er það akkurat það sem við viljum. Ef ég ætti að líkja henni við einhverja sérstaka köku þá held ég að þessi sé mjög skyld franskri súkkulaðiköku, nema þessi er hveitilaus og eins og með þá frönsku er hún best með rjóma. Eins og ég sagði er kakan hveitilaus en í hana notaði ég möndlumjöl í stað hveitis sem gefur smá svona eins og marsípanáferð á hana, en samt bragðast hún ekki eins og marsípan. Kakan er best borin fram heit en hún er í senn stökk að utan og blaut og klístruð að innan eins og blanda af franskri súkkulaðiköku og kladdaköku. Í staðinn fyrir smjör notaði ég kókósmöndlusmjörið frá Rapunzel en það er í miklu uppáhaldi hjá mér enda ekki bara hollt heldur einnig mjög bragðgott. Ég mæli með að þú hendir í þessa köku en með henni bar ég fram Oatly þeyttan rjóma og toppaði svo allt heila klabbið með döðlusírópinu frá Rapunzel. Þetta var hin fullkomna þrenna!
AspasbrauðrétturBrauðréttur sem er tilvalinn á veisluborðið eða bara í kvöldmatinn. Hægt er að græja fyllinguna deginum á undan se getur verið einstaklega þægilegt í veisluundirbúningi eða til að eiga tilbúna eftir annríkan vinnudag. Fyllinguna er einnig hægt að setja inní tartalettur sem við gerum alltaf um jólin.
Vegan ostasalatOstasalöt eru oft vinsæl á veisluborði. Um helgina var haldið uppá 90 ára afmæli hjá ömmu minni og kom öll fjölskyldan saman, allir hennar 36 afkomendur, makar og tengdafjölskylda. Amma sjálf hefur alltaf verið þekkt fyrir að sýna ást sína með mat og enginn kemur í heimsókn til hennar nema fara þaðan pakksaddur. Afkomendurnir hafa svolítið erft þetta frá henni og var veislan því einhverskonar pálínuboð á sterum. Í síðustu viku ákvað ég að prófa mig áfram með vegan útgáfu af klassísku ostasalati og mér fannst það heppnast svo vel að það fékk að koma með í veisluna hennar ömmu.
Guðdómlegar og gómsætar einfaldar ostabrauðbollurÞessar bollur eru bara með þeim allra einföldustu og ég baka þær mjög reglulega. Þær eru vegan og henta því mjög mörgum með ýmis konar óþol og ofnæmi. Þær eru alveg dásamlegar á morgunverðarborðið, brunchinn, í nestisboxið og svo frystast þær líka mjög vel. Uppskriftin er miðlungs stór myndi ég segja og gera 28-30 stk. Ég nota Oatly ikaffe mjólkina mikið í mjólkurlausan bakstur og nota hana einmitt hér. Ikaffe týpan er meira creamy og gerir allt extra gott. Það er alveg af og frá að hún sé eingöngu til þess að flóa í kaffi þó hún sé vissulega framúrskarandi í kaffið. Prófið að skipta þessari venjulegu út fyrir Oatly ikaffe og þið eigið ekki eftir að finna neinn mun nema til hins betra!
1 2 3 8