Einföld og fljótleg döðlukaka með kanilÞessi kaka er alveg fullkomin sunnudagskaka sem gott er að skella í með stuttum fyrirvara. Það er mjög einfalt að laga deigið og það þarf ekkert að bíða eftir því að hún kólni alveg. Krökkunum finnst þessi alveg dásamleg sem og okkur fullorðna fólkinu. Kakan er án dýraafurða og henta vel þeim sem sneiða hjá þeim.
PizzasnúðarHér voru pizzasnúðar útfærðir úr uppskrift af pizzadeigi. Útkoman var alveg dásamleg og nokkuð er ljóst að þessir snúðar verða bakaðir á þessu heimili reglulega í framtíðinni. Þeir voru mjúkir og ljúffengir og kláruðust ansi hratt. Uppskrift dugar í um 20-24 snúða
SúkkulaðisamlokurVirkilega skemmtileg og öðruvísi „smákaka“ sem er í raun brownie kaka með súkkulaði- og heslihnetukremi, NAMM með stóru N-i!
Möndlusmákökur með suðrænu ívafiHér eru kökur fyrir þá sem elska að hafa eitthvað gott að maula á á aðventunni með kaffinu, sem er þó ekki alveg dísætt eins og margar smákökur eiga til að vera. Þessar möndlukökur minna mig ögn á ítölsku kökurnar cantucci eða biscotti hvað bragðið varðar. Ekki dísætar en mátulega sætar til að hafa með kaffinu. Ef þig langar að hafa kökurnar aðeins meira djúsí þá er hægt að setja dökkt súkkulaði á þær en ég gerði það við helmingin af kökunum, þar sem krakkarnir vildu þær með súkkulaði á. Ég hins vegar vil þær án súkkulaðis svo ykkar er valið. Ég notaði 85 % súkkulaði frá Rapunzel þar sem það er ekki of sætt og gefur djúpt súkkulaðibragð. Meginhráefnið og aðalstjarnan í kökunum er möndlusmjör og hakkaðar möndlur. Möndlusmjörið gefur kökunum þetta dásamlega möndlubragð. Hökkuðu möndlurnar gefa kökunum bit undir tönn sem ég elska. Ég notaði Rapunzel möndlusmjörið en það eru 100 % möndlur í því, auk þess sem það er lífrænt ræktað og algjör gæðavara. Kökurnar eru stökkar á köntunum og svo mjúkar inn að miðju, en ég elska að hafa þær þannig. Ég baka þær þá á styttri tímanum, en ef þú vilt hafa þær alveg stökkar þá geturðu valið lengri tímann. Það sem skemmir síðan ekki fyrir er að kökurnar eru afar eindaldar að gera og tekur stuttan tíma að henda í þær. Deigið þarf ekkert að kólna né neitt vesen og því tilvalið fyrir óþolinmóða eins og mig. Team súkkulaði eða ekki súkkulaði, team stökkir kantar, mjúk miðja eða stökkar harðar biscotti kökur. Hér ræður þú ferðinni og útkoman eins og þú vilt hafa hana.
Jarðarberja jólasveinarÞað verður varla meira sætt enn þessir krúttlegu jarðarberja jólasveinar með rjómaostakremi.
Blúndur með súkkulaðikremiÞessar blúndur eru með smá tvisti og ó vá hvað þær eru ljúffengar! Samlokur úr þunnum og stökkum haframjölssmákökum með súkkulaði smjörkremi á milli. Ég notaði Nusica súkkulaðismjör í kremið og það gefur svo gott bragð. Innblásturinn að uppskriftinni eru margar uppskriftir sem ég skoðaði bæði í uppskriftabókum og á netinu og þetta var útkoman. Dásamlega gott!
Toblerone smákökurStökkar og bragðgóðar smákökur sem tekur enga stund að útbúa. Mér finnst Toblerone svo jólalegt súkkulaði og það gerir þessar smákökur extra góðar! Ég blanda smátt söxuðu Toblerone saman við deigið ásamt því að setja stóra bita af því í deigið. Namminamm! Þessi uppskrift klikkar ekki.
Milka sörurÞað elska allir sörur, þessar sörur eru með mjúku Milka súkkulaði sem gerir allt betra.
FílakaramelluostakakaLíklega ein besta ostakaka allra tíma, mjúk ostafylling með kanilbotni og karamelluhjúp.
Hveitilaus fallin súkkulaðikaka með rakri miðjuÉg elska svona fallnar kökur sem eru fallega ljótar, því oft eru þær einfaldlega bestar. Hér er ég með eina dásamlega góða köku sem er í senn einföld en afar ljúffeng, svona kaka kallast oft torte á ensku en þá er verið að vísa til fallinnar súkkulaðiköku. Yfirleitt viljum við ekki að kökurnar okkar falli eftir bakstur en í þessu tilfelli er það akkurat það sem við viljum. Ef ég ætti að líkja henni við einhverja sérstaka köku þá held ég að þessi sé mjög skyld franskri súkkulaðiköku, nema þessi er hveitilaus og eins og með þá frönsku er hún best með rjóma. Eins og ég sagði er kakan hveitilaus en í hana notaði ég möndlumjöl í stað hveitis sem gefur smá svona eins og marsípanáferð á hana, en samt bragðast hún ekki eins og marsípan. Kakan er best borin fram heit en hún er í senn stökk að utan og blaut og klístruð að innan eins og blanda af franskri súkkulaðiköku og kladdaköku. Í staðinn fyrir smjör notaði ég kókósmöndlusmjörið frá Rapunzel en það er í miklu uppáhaldi hjá mér enda ekki bara hollt heldur einnig mjög bragðgott. Ég mæli með að þú hendir í þessa köku en með henni bar ég fram Oatly þeyttan rjóma og toppaði svo allt heila klabbið með döðlusírópinu frá Rapunzel. Þetta var hin fullkomna þrenna!
Sígildar kókosmakkarónur með dökku súkkulaðiÞessi uppskrift er löngu orðin sígild og ber með sér keim af smávegis nostalgíu. Hér nota ég einungis örfá lífræn hráefni og eru kókosmakkarónurnar einnig glútenlausar. Það er sérlega fljótlegt að útbúa þessar makkarónur og 85% súkkulaðið frá Rapunzel setur alveg punktinn yfir i-ið. Þær geymast vel og því má alveg gera þær með góðum fyrirvara. Þessar eru algjörlega ómissandi fyrir alla unnendur kókos!
1 3 4 5 6 7 25