fbpx

Möndlusmákökur með suðrænu ívafi

Hér eru kökur fyrir þá sem elska að hafa eitthvað gott að maula á á aðventunni með kaffinu, sem er þó ekki alveg dísætt eins og margar smákökur eiga til að vera. Þessar möndlukökur minna mig ögn á ítölsku kökurnar cantucci eða biscotti hvað bragðið varðar. Ekki dísætar en mátulega sætar til að hafa með kaffinu. Ef þig langar að hafa kökurnar aðeins meira djúsí þá er hægt að setja dökkt súkkulaði á þær en ég gerði það við helmingin af kökunum, þar sem krakkarnir vildu þær með súkkulaði á. Ég hins vegar vil þær án súkkulaðis svo ykkar er valið. Ég notaði 85 % súkkulaði frá Rapunzel þar sem það er ekki of sætt og gefur djúpt súkkulaðibragð. Meginhráefnið og aðalstjarnan í kökunum er möndlusmjör og hakkaðar möndlur. Möndlusmjörið gefur kökunum þetta dásamlega möndlubragð. Hökkuðu möndlurnar gefa kökunum bit undir tönn sem ég elska. Ég notaði Rapunzel möndlusmjörið en það eru 100 % möndlur í því, auk þess sem það er lífrænt ræktað og algjör gæðavara. Kökurnar eru stökkar á köntunum og svo mjúkar inn að miðju, en ég elska að hafa þær þannig. Ég baka þær þá á styttri tímanum, en ef þú vilt hafa þær alveg stökkar þá geturðu valið lengri tímann. Það sem skemmir síðan ekki fyrir er að kökurnar eru afar eindaldar að gera og tekur stuttan tíma að henda í þær. Deigið þarf ekkert að kólna né neitt vesen og því tilvalið fyrir óþolinmóða eins og mig. Team súkkulaði eða ekki súkkulaði, team stökkir kantar, mjúk miðja eða stökkar harðar biscotti kökur. Hér ræður þú ferðinni og útkoman eins og þú vilt hafa hana.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 350 g hveiti
 ½ tsk lyftiduft
 ½ tsk matarsódi
 1 tsk salt
 225 g mjúkt smjör
 210 g púðursykur
 200 g sykur
 250 g möndlusmjör (Mandelmus) frá Rapunzel
 2 stk egg
 1 msk vanilludropar
 150 g hakkaðar möndlur
 Valfrjálst: Gróft salt til að dreifa yfir kökurnar fyrir bakstur
 Valfrjálst: Dökkt súkkulaði til að setja á kökurnar eftir bakstur

Leiðbeiningar

1

Byrjið á að setja smjörpappír á bökunarplötu og hita ofn á 175 °C blástur
Blandið hveiti, salti, lyftidufti og matarsóda í skál og leggjið til hliðar

2

Setjið næst mjúkt smjörið í hrærivél og þeytið þar til verður smá loftkennt, bætið þá púðursykri og sykri saman við og hrærið þar til verður létt og ljóst

3

Bætið þá möndlusmjörinu saman við og hrærið vel saman
Setjið svo vanilludropa og eitt egg í einu saman við og hrærið vel milli eggja svo að þau fari vel inn í deigið

4

Bætið svo þurrefnunum úr skálinni saman við í tvennu lagi og hrærið vel saman en þó ekki of mikið

5

Mótið svo kúlur með lítillri kökuskeið eða úr c.a 2 tsk af deigi og setjið á bökunarplötuna

6

Fletjið svo kúlurnar út með gaffli en ég pressa gafflinum í báðar áttir svo komi eins og ferningamynstur á kökurnar

7

Ef þú vilt hafa gróft salt þá er því dreift yfir kökurnar (ekki of mikið samt) áður en þær fara í ofninn

8

Bakið í 10-12 mínútur. Tíu ef þú vilt mjúka miðju en 12 ef þú vilt hafa þær alveg stökkar

9

Látið kólna í eins og 5 mínútur á bökunarplötunni og færið þær þá yfir á grind til að kólna alveg

10

Fyrir þá sem kjósa með súkkulaði þá bræði ég það í örbylgju í 20-30 sekúndur í senn og hræri á milli. Dreifið súkkulaðinu yfir kökurnar eftir að þær eru búnar að kólna eða dýfið jafnvel helming af köku ofan í og látið storkna

Matreiðsla, MatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…