Hátíðlegur vegan eftirrétturHátíðlegur vegan eftirréttur í hollari kantinum með Oatly þeytirjóma. Psst... það besta við þennan eftirrétt er að hann virkar vel sem spari morgunmatur daginn eftir, ef það verður afgangur.Einföld eplabaka með kanil og kardimommumGalette bökur geta verið allavega og þessi er ein af þeim einfaldari. Hér er hún í dásamlegri vegan útgáfu og bragðmikil eplin eru krydduð með kanil og kardimommum. Það er fljótlegt að útbúa þessa böku og uppskriftin inniheldur ekki mörg eða flókin hráefni. Botninn er alveg einstaklega góður, “flaky” og stökkur án þess að verða of harður. Bakan er alls ekki of sæt og býður upp á marga möguleika. Það væri hægt að strá söxuðum hnetum yfir hana undir lok bökunartímans t.d eða dreifa smá karamellusósu yfir. Ég toppa hana með dásamlegu vanillusósunni frá Oatly en hún er alveg ómissandi með eplabökum og svo góð þegar hún hefur verið þeytt.Klassískt Riz a L´Mande – VeganFyrir þá sem þykja möndlugrauturinn ómissandi á jólunum er hér vegan útgáfa sem allir geta notið.Vegan jólaís með heslihnetusúkkulaðiBragðgóður og einfaldur vegan jólaís. Hann inniheldur Oatly vanillusósu, Oatly rjóma og hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingu frá Rapunzel. Vá hvað þessi blanda er góð og hátíðleg. Ég toppa svo ísinn með súkkulaðisósu úr dökku súkkulaðiáleggi frá Rapunzel ásamt ferskum berjum sem gerir hann extra hátíðlegan og fallegan.Sæt marokkósk linsusúpaDjúsí linsubaunasúpa með kókosmjólk sem er tilvalin sem léttur hádegisverður eða kvöldverður. Ensk döðlukaka með dökkri karamellusósu og þeyttum hafrarjómaÞessi kaka er af enskum uppruna og yfirleitt kölluð “búðingur” en hún er mjög létt í sér og hefur áberandi karamellukeim. Það tekur enga stund að gera hana og hentar fullkomlega sem eftirréttur, í saumaklúbbinn eða jafnvel á vegan jólahlaðborðið.Vegan hafraklattar með rúsínum og kanilÞessi heilaga þrenna, hafrar, rúsínur og kanill eru hér samankomin í dásamlegum vegan smákökum. Eða klattar öllu heldur þar sem þessar kökur eru ekkert sérstaklega smáar. Þær gætu vel verið jólasmákökur en þær eru bara það góðar að það væri synd að baka þær bara fyrir jólin. Þessar eru langbestar nýbakaðar með stóru glasi af Oatly haframjólk!Ekta ítalskar biscotti með lífrænum möndlumVið sem elskum Ítalíu og ítalskan mat sláum nú ekki höndinni á móti biscotti með kaffinu. Stökkar, bragðgóðar og fullkomnar ítalskar smákökur til að dýfa í funheitt, rótsterkt kaffi. Það sem er svo skemmtilegt við þessa uppskrift er að hún er vegan. Uppskriftin er auk þess einföld og kökurnar geymast vel í loftþéttu boxi.Vegan New York ostakaka með jarðarberjumAf því að ostakökur eru hreinlega bestar varð ég að gera vegan útgáfu af New York ostaköku. Þær eru gjarnan bakaðar en ég vildi þó hafa þessa hráa. New York ostakökurnar frægu eru í grunninn vanillufylling á stökkum kexbotni sem ber keim af kanil. Yfir hana er gjarnan hellt jarðarberjasósu og borin fram með jarðarberjum. Ég tók mér smá skáldaleyfi með þessa en fullyrði að þessi er eins sú allra besta sem ég hef smakkað. Vegan eða ekki. Botninn er heimagert hafrakex og það er auðvitað vegan líka. Uppskriftin af kexinu er frekar stór en það kemur ekki að sök þar sem það er fljótt að hverfa ofan í heimilisfólk. Fyllingin samanstendur af kasjúhnetum sem lagðar voru í bleyti og Oatly tyrkneska jógúrtinu en mér finnst það henta sérlega vel í tertur eins og þessa. Fyllingin er frekar mjúk og heldur sér ágætlega en ég bera hana samt hálffrosna. Ef þið viljið hafa hana stífari mæli ég með að setja 1 tsk af agar agar dufti í fyllinguna. Jarðarberjasósuna er hægt að frysta með kökunni eða setja hana yfir eftir á, hvorutveggja er alveg ljómandi.Mangó lassi með ástaraldin og elsku OatlyLangar þig í nýtt bragð? Bragðbættu hreinu hafragúrtina frá Oatly með mangó og ástaraldin.Fljótleg Vegan Súkkulaðimús með þeyttum rjómaÞessi er ansi langt frá gamla pakkabúðingnum sem við þekkjum mörg en ekki mikið flóknari samt! Örfá hráefni og smá tími er allt sem þarf. Það er alveg ótrúlegt hvað er hægt að gera með chia fræjum og haframjólk nefnilega. Svo styttum við okkur enn leið og notum súkkulaði haframjólk, hversu mikil snilld!... Krakkarnir elska þennan ekkert síður en við hjónin. Við toppum hann með þeyttum Oatly visp hafrarjóma en það er auðvitað smekksatriði, okkur finnst hann verða extra gúrm þannig.Algjörlega trufluð vegan Snickers ostakakaOstakökur eru bara bestar. Það er mín skoðun allavega en það þarf ekkert að vera ostur í henni. Hljómar skrítið en það er hægt að gera dásamlegustu ostakökur í vegan útgáfu. og þessi er það svo sannarlega. Uppistaðan í ostakökublöndunni eru kasjúhnetur sem lagðar voru í bleyti sem og Oatly sýrður rjómi. Með smá dúlleríi og góðum blandara er útkoman þessi himneska kaka.Vegan núggatmúsVegan núggatmús með digestive kexi, berjum og þeyttum rjómaVegan Súkkulaðitrufflumús"Oatly þeytirjóminn er svo mikill gamechanger í vegan eftirréttum, elska´nn!" Einföld og þétt súkkulaðitrufflumús með rjóma og jarðaberjum.Sítrónu- og bláberjamuffinsHér koma sykurlausar og sumarlegar sítrónu og bláberja muffins. Fullkomnar í nestisboxið á leikjanámskeiðið eða bara með kaffinu.
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Smelltu hér til að kynna þér skilmála síðunnar.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-functional
11 months
The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional".
cookielawinfo-checkbox-necessary
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
viewed_cookie_policy
11 months
The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.