Allra besta heimabakaða fjölkornabrauðiðÞetta brauð baka ég mjög reglulega og hef gert í meira en áratug. Það er svo dásamlega einfalt, bragðgott og saðsamt. Það tekur enga stund að skella í það og smakkast dásamlega volgt með smjöri og osti eða bragðmiklum hummus. Ég nota allskonar fræ sem mér þykja góð í brauðið og heslihneturnar og kókosinn gefa virkilega gott bragð. Ég rista heslihneturnar áður en það er ekki nauðsynlegt. Svo má auðvitað sleppa þeim ef ofnæmi er til staðar t.d.
Uppskriftin gæti svo hæglega verið vegan, eina sem þarf þá að gera er að skipta hunanginu út fyrir hlynsíróp. Ég mæli ekki með því að sleppa sætunni því hún ýtir einhvern veginn undir bragðið af öllum fræjunum og hnetunum.
Upphaflega var þetta uppskriftin af „Gló brauðinu“ en uppskriftin hefur þróast mikið þó grunnurinn sé alltaf hinn sami
KjúklingabaunasalatKjúklingabaunasalat hefur oft verið okkar “go to” inní nestissamlokuna. Það er bragðmikið, saðsamt og nokkuð næringarþétt sem hentar fyrir bæði ferðalögin, útipiknik en líka skólanestið.
Það er að sjálfsögðu hægt að setja kjúklingabaunasalat inní vefju, útá salatskálina, nota sem meðlæti eða topping á bakaða kartöflu / sæta kartöflu, á kexið…. ég held þið náið þessu 😉Grískt salat með basil tófúteningum“Salat season is here”! Grískt salat er eitthvað sem flestir kannast við og er einstaklega sumarlegt. Hér fyrir neðan er uppskrift af marineruðum tófúteningum og hvernig ég nota þá í grískt salat. Í staðinn fyrir fetaost er ég að nota marinerað basil tófú sem gefur salatinu skemmtilega fyllingu, bragð og auka prótein. Fullkomið salat til að bera fram með grilluðu grænmeti í sumar eða með pastarétt… salatið er líka hægt að borða bara eitt og sér.
Það er svo auðvitað hægt að nota tófúteningana í annarskonar salöt eins og t.d. quinoa eða pastasalöt eða útí pastasósuna eða sem hluta af fyllingu inní vefju eða pítu. Ég vona að færslan og uppskriftin veiti ykkur innblástur til að prófa ykkur áfram með tófú í sumar.Guðdómleg gulrótarkaka með ristuðum pekanhnetum og rúsínumGulrótarkökur hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og þessi uppskrift er ein af mínum uppáhalds. Ég veit í sannleika sagt ekki af hverju ég hef ekki sett hana fyrr á síðuna en hún klárast alltaf upp til agna og er í miklu uppáhaldi hjá fleirum en mér. Í þessari er hellings næring og aðeins minni sykur en í þeim mörgum. Kókosolían frá Rapunzel er bragðlaus og frábær í bakstur eins og þessa köku. Ég nota einnig hafrahveiti á móti venjulegu hveiti en það gefur mjög gott bragð. Hafrarnir gera hana aðeins lausari í sér en hún er vel djúsí svo það kemur ekki að sök. Hún er svo toppuð með allra besta rjómaostakreminu og söxuðum pekanhnetum. Mexíkóskt quinoa salatQuinoa er sennilega uppáhalds „kornið“ mitt. Tæknilegar séð er það reyndar ekki korn heldur fræ. Quinoa er glútenlaust, próteinríkt og inniheldur trefjar. Það hefur nokkuð hlutlaust bragð sem bíður uppá allskonar möguleika fyrir kryddskúffuna.
Hér höfum við mexíkó quinoa sem er ótrúlega gott sem meðlæti, sem mexíkó salatgrunnur, sem fylling inní burritovefjuna eða t.d. til að toppa bakaða sæta kartöflu. Quinoað má borða bæði heitt og kalt sem getur verið hentugt fyrir nestið eða flótlega afgangamáltíð. Þessi hefur verið í uppáhaldið hjá okkur lengi, bæði hjá börnum og fullorðnum.ÁvaxtasafapinnarÉg er farin að hlakka óendanlega mikið til sumarsins og ég lék mér með ljós sólarinnar við að mynda þessa sumarlegu, lífrænu og einföldu frostpinna. Á meðan erfitt er að finna náttúrulega frostpinna á markaðnum þá hef ég leikið mér að gera allskonar útgáfur heima. Stundum hefur einfaldleikinn unnið og þá hefur mér fundist brilliant að nota lífrænu Beutelsbacher safana. Hér erum við með hreina ávaxtasafann frá þeim sem er svo ótrúlega góður og ég er ekki hissa að hann hafi verið verðlaunaður.
Svo hér er önnur útgáfa af effortless frostpinnum sem við elskum að eiga í frystinum….. bæði á veturna og sumrin því við bara elskum ís.Algjörlega truflaðar heslihnetu brownies með súkkulaðismjöriÉg veit hreinlega ekki hvaða lýsingarorð eru nógu sterk til þess að lýsa þessum brownies. Aldrei í lífinu hef ég smakkað þær betri og heimilisfólkið var mér svo sannarlega sammála. Þær eru með góðu djúpu súkkulaðibragði en bragðið af súkkulaðismjörinu og núggatinu í súkkulaðinu skín í gegn. Ristaðar heslihneturnar færa þær svo upp á eitthvað stig sem ég vissi varla að væri til. Það tekur smá tíma að nostra við þær, rista hneturnar og svona en það er fullkomlega þess virði. Þær eru „fudgy“, smá blautar í miðjunni en með stökkum toppi. Fullkomnar í helgarkaffitímann!Hrásalat með raw hampfrædressinguRaw hrásalat, eða hrá-hrásalat! Hér erum við allavega með hollari týpuna að hrásalati en dressingin kemur manni skemmtilega á óvart og gefur þessa creamy áferð með smá sætu bragði og minnir óneytanlega á klassískt hrásalat með mæjó, nema ferskara…. æji þið skiljið þegar þið prófið.
Fullkomið sem hliðarsalat með nánast hverju sem er.
Færslan er unnin í samstarfi við Beutelsbacher á íslandi. Eplaedikið frá Beutelsbacher er sennilega lykilhráefnið til að fá þetta “mæjó” bragð.
Til að bæta því við þá hafði maður minn orð á því hversu geggjuð þessi dressing væri… sem mér fannst ótrúlega skemmtilegt þar sem hann þykist ekki borða rúsínu, sinnep né edik. Lol. 😉Heitar krossbollur með kanil, vanillu og dökku súkkulaðiHot cross buns eða heitar krossbollur eru bakaðar víða um heim um páskana og yfirleitt þá á föstudaginn langa. Þær koma í allskonar útfærslum, algengt er að þær innihaldi rúsínur, sultaða ávexti, appelsínubörk, súkkulaði eða hnetur. Þær tengjast bæði í kristni en einnig í heiðinn sið. Krossinn getur táknað kross Krists og vísað þannig í krossfestinguna. Í heiðnum sið táknar krossinn fjögur kvartilaskipti tunglsins og eru bollurnar fórn til gyðjunnar Eostre sem er gyðja vors og dögunar.
Þessar eru í vegan útgáfu með dökku súkkulaði, kanil og ekta vanillukornum. Þær passa sérlega vel í páskabrönsinn eða páskakaffið. Hægt er að leika sér endalaust með uppskriftina, setja rúsínur til móts við súkkulaðið, sleppa kanil og setja rifinn appelsínubörk osfrv.
Þær passar mjög vel í páskabrönsinn eða páskakaffið og eru bestar ylvolgar með smjöri.
“1001 nótt” smoothie skálÞað eru örugglega einhverjir sem þekkja nafnið en þessi smoothie skál er innblásin af smoothie af matseðlinum hjá ísey skyrbar. Þetta er smoothie sem er vinsæll á heimilinu en það getur verið dýrt að kaupa tilbúinn smoothie fyrir 4 manna fjölskyldu oft í mánuði.
Ísey notar eplasafi úr kreistum eplum í smoothie-inn en til einföldunar höfum við hér heima haldið okkur við eitt eldhústæki til að græja fram þennan smoothie og notað heila appelsínu í staðinn fyrir eplasafa og það kemur alls ekki niður á bragðinu.
Það getur auðvitað verið ótrúlega þægilegt og fljótlegt að kaupa sér tilbúna smoothieskál á ferðinni en það eru allskonar kostir sem fylgja því að gera sér smoothieskál heima, það er bæði ódýrara en einnig gefur það svigrúm til að velja hráefnið og gera t.d. lífrænni útgáfu eins og hér að neðan og þú getur toppað skálinu með þínu eftirlæti.Heimagert falafelFalafel er eitthvað sem flestir þekkja og hafa smakkað. Falafel eru bollur úr kjúklingabaunum sem eru einar af mínum uppáhaldsbaunum. Fyrir einhverjum mánuðum fór ég að leita leiða til að spara í mat og það að elda úr baunum er sennilega besta sparnaðartipsið sem ég get gefið ykkur þegar það kemur að því að eyða minna í mat án þess að það komi niður á gæði næringar.
Ég fór að leggja kjúklingabaunir í bleyti og óvart varð til vikuleg rútína sem sparaði okkur matarkostnað, einfaldaði lífið og á sama tíma skapaði tilhlökkun hjá bragðlaukunum.
Ég legg 500gr af þurrum kjúklingabaunum í bleyti og nota hluta af þeim til að búa til falafel, restina síð ég og nota þá hluta fyrir hummus og svo verður yfirleitt afgangur en það er breytilegt hvað verður úr þeim. Stundum geymi ég afgangsbaunirnar til að steikja á pönnu og toppa salat eða súpur með, stundum geri ég kjúklingabaunasalat sem er vinsælt í nestissamlokur í skólann, en þær hafa líka ratað í orkukúlur sem var alls ekki vitlaus hugmynd. Við hreinlega elskum kjúklingabaunir og möguleikana sem þær bjóða uppá.
Uppskriftin geriri ráð fyrir að þið eigið matvinnsluvél.Suðrænn smoothieSuðrænn og smoothie úr aðeins 3 hráefnum úr smiðju Hildar Ómars. Einfaldara og ferskara verður það varla.Allra bestu súkkulaðibitakökurnar hennar MonikuÞessar súkkulaðibitakökur slá allar aðrar út, það er bara staðreynd! Ég hef bakað þær ótal sinnum en í grunninn er þetta uppskrift sem leikkonan Courtney Cox birti á Instagram síðu sinni. Því ganga þessar kökur undir nafninu „Moniku kökurnar “ af augljósum ástæðum. Þær hafa algjörlega slegið í gegn hjá öllum þeim sem hafa smakkað þær en þær ná að vera stökkar að utan en líka mjúkar en um leið smávegis seigar. Þær innihalda vænt magn af súkkulaði og ekta vanillu sem gerir bragðið algerlega ómótstæðilegt.
Það eru nokkur atriði sem skilur þær að frá öðrum. Í fyrsta lagi nota ég bæði venjulegt hveiti og brauðhveiti en þær verða smá seigar með því síðarnefnda. Einnig skiptir máli að nota bæði venjulegan hvítan sykur með púðursykrinum. Þá er þetta mikla magn súkkulaðis algerlega nauðsynlegt og ég mæli ekki með því að freistast til þess að minnka það. Það er einnig mikilvægt að saxa súkkulaðið mjög gróft. Hver kaka er mjög stór og það er líka mikilvægt að halda stærðinni. Það er þá frekar hægt að skera hverja tilbúna köku í tvennt eða fernt ef það á að bera þær á borð fyrir gesti. Að síðustu er mjög mikilvægt að kæla deigið í að minnsta kosti sólarhring áður en þær eru bakaðar, en jafnvel fara upp í 48 stundir eða lengur.Pizza fyrir tvoHér er á ferðinni ekta pizza fyrir rómantískan kvöldverð! Auðvitað má gera þessa pizzu við hvaða tilefni sem er en mér fannst þetta eitthvað svo ekta þannig stemming í henni. Almáttugur hvað perur, brie og karamelluhnetur eru fullkomin blanda og þið hreinlega verðið að prófa þessa snilld!Hátíðlegur kaffi & saltkaramellu desertÞað er bæði fallegt og þægilegt að bera fram eftirrétti í fallegum glösum. Hvers kyns osta- og skyrkökur eru sérlega einfaldar og sparilegar í slíkum búningi. Ég ákvað hérna að skeyta saman tiramisu fyllingu saman við saltkaramellukex sem bleytt var upp í með sterku kaffi og heimagerða saltkaramellu. Kaffi og karamella fara svona óskaplega vel saman og þessi eftirréttur er fullkominn endir á veislumáltíð. Hægt er að gera hann með góðum fyrirvara sem einfaldar matarboðið til muna. Þessi mun sannarlega slá í gegn um áramótin!
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Smelltu hér til að kynna þér skilmála síðunnar.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-functional
11 months
The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional".
cookielawinfo-checkbox-necessary
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
viewed_cookie_policy
11 months
The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.