fbpx

Algjörlega truflaðar heslihnetu brownies með súkkulaðismjöri

Ég veit hreinlega ekki hvaða lýsingarorð eru nógu sterk til þess að lýsa þessum brownies. Aldrei í lífinu hef ég smakkað þær betri og heimilisfólkið var mér svo sannarlega sammála. Þær eru með góðu djúpu súkkulaðibragði en bragðið af súkkulaðismjörinu og núggatinu í súkkulaðinu skín í gegn. Ristaðar heslihneturnar færa þær svo upp á eitthvað stig sem ég vissi varla að væri til. Það tekur smá tíma að nostra við þær, rista hneturnar og svona en það er fullkomlega þess virði. Þær eru „fudgy“, smá blautar í miðjunni en með stökkum toppi. Fullkomnar í helgarkaffitímann!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 80 g heslihnetur, ristaðar og án hýðis, ég notaði frá Rapunzel
 170 g smjör
 180 g 70% súkkulaði frá Rapunzel, gróft saxað
 100 g Núggat súkkulaði frá Rapunzel, gróft saxað
 150 g Bionella súkkulaðismjör frá Rapunzel + 50g til að setja ofan á
 245 g sykur
 3 stk egg
 1 stk eggjarauða, við stofuhita
 1 tsk vanilludropar
 0,50 tsk vanillukorn frá Rapunzel, má sleppa og setja 2 tsk. vanilludropa
 100 g hveiti
 25 g kakó
 0,50 tsk sjávarsalt

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 180°C blástur. Setjið hneturnar á plötu og ristið í ofninum í 15 mín. Takið þær þá út og hellið á hreint viskastykki. Nuddið hneturnar þar til mest allt hýðið er farið af. Kælið aðeins og saxið svo gróft. Setjið til hliðar.

2

Lækkið hitann í 175°C blástur og setjið bökunarpappír í ferkantað form sem er 23x23cm.

3

Setjið smjör, 70% súkkulaði og núggatsúkkulaðið í bitum í pott og hitið við vægan hita þar til þetta er bráðið saman. Takið pottinn af hellunni.

4

Hrærið þá 150g af Bionella súkkulaðismjörinu saman við og setjið til hliðar.

5

Setjið egg og sykur í hrærivélaskál og þeytið þar til blandan er orðin létt og ljós eða í um 3-4 mín.

6

Bætið vanilludropum og kornum saman við ef þið notið þau og þeytið áfram í nokkrar sekúndur.

7

Vigtið þurrefnin og setjið til hliðar.

8

Takið þeytarann af hrærivélinni og blandið súkkulaðiblöndunni varlega saman við með sleikju. Sigtið því næst þurrefnin saman við og hrærið varlega með sleikjunni.

9

Setjið helminginn af deiginu í formið og stráið hnetunum yfir, skiljið eftir smávegis til að strá yfir kökuna.

10

Setjið restina af deiginu yfir og sléttið aðeins úr. Bakið í 35 mín. Takið þá kökuna út og kælið.

11

Velgið 50g af súkkulaðismjörinu í nokkrar sekúndur í örbylgjunni og dreifið yfir kökuna, stráið restinni af hnetunum yfir og njótið!

MatreiðslaMatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…