Lífrænir hafrabitar með eplum, kanil og bláberja kompottOkkur vantar oft hugmyndir af einhverju næringarríku og fljótlegu. Þessir bitar eru alveg ótrúlega einfaldir og það tekur enga stund að útbúa þá. Þeir eru sérlega góðir í nestiboxið eða á morgunverðarborðið. Þeir geymast vel í loftþéttu boxi í kæli, eru lífrænir, hveitilausir og fara einstaklega vel í maga. Þeir eru ekki dísætir en það má auka við eða draga úr sætumagni ef vill. Lífræna hlynsírópið frá Rapunzel er dásamlegt í bakstur og auðvitað alveg ljómandi gott með pönnukökum eða vöfflum. Það er einnig stórgott að setja nokkra dropa í kaffið en þessir bitar eru einmitt alveg sérlega góðir með rjúkandi heitum kaffibolla.
Tígrisrækju TostadasAlmáttugur minn hvað þetta var ferskt og gott og frábær tilbreyting frá haustmatnum sem ég er búin að vera með undanfarið! Tígrisrækjur eru alveg svakalega góðar af grillinu!
Poffertjes hollenskar pönnukökur með maple smjöriÉg er búin að ætla mér í þónokkurn tíma að gera nokkrar uppskriftir af góðgæti sem ég kynntist í hinni einu sönnu Ameríku. Ég hafði ekki hugmynd um hvað Dutch pancakes eða Poffertjes var fyrr en ég fór á stað í New York sem heitir Le pain quotidien. Þar var á boðstólnum þessar dýrindis litlu kringlóttu pönnukökur sem voru bornar fram með banana og maple smjöri, og úff hvað þetta var gott. Poffertjes er mjög þekkt í Hollandi og kannast kannski margir sem hafa þangað komið við að hafa keypt sér poffertjes af götusölum. Hægt er að fá poffertjes með súkkulaðiáleggi, rjóma, síróp eða bara hverju því sem hugurinn girnist. Oftast er þó alltaf búið að sáldra flórsykri yfir. Svo ég lýsi nú aðeins hvað poffertjes er þá er það ekki svo langt frá hinum dönsku eplaskífum, nema í stað lyftidufts er notað ger og það eru engin epli í þeim. Til að geta bakað þær þarf maður helst að eiga sérstaka pönnu til verksins sem svipar mjög til eplaskífupönnu en það er akkurat eplaskífupanna sem ég notaði, sjá mynd neðst. Maple smjör er svo annað sem ég hafði aldrei bragðað áður en vá hvað það er gott. Hér er mikilvægt að nota gott gæða Maple síróp en ég notaði frá Rapunzel. Rapunzel Maple sírópið er hið fullkomna síróp til að nota í maple smjör. Það er Dökkt, kröftugt og gefur eins og karamellubragð. trénu verður það dekkra, bragðmeira sætara. Rapunzel er mjög vandað merki en Rapunzel framleiðir lífrænar vörur af ást og umhyggju og eru frumkvöðlar í lífrænni ræktun. Rapunzel leggur sérstaka áherslu ekki aðeins á gæði matarins heldur einnig á lífsgæði bændanna sem rækta hann.
Súkkulaðibitakökur með karamellukeimHér kemur ein klassísk þar sem ég var bæði að prófa að nota brætt smjör (í stað smjörs við stofuhita) og Milka Daim súkkulaði sem er eitt af okkar uppáhalds og útkoman var stórfengleg.
SlöngukakaÞessi súkkulaðikaka er guðdómleg og kremið ekki síðra. Slöngukakan krefst þess að þið hafið smá tíma til þess að baka og skreyta en allir ættu að ráða við hana. Síðan er afar hentugt að skera hana í sneiðar þegar hún er í laginu eins og slanga.
Rótargrænmetisfranskar með spicy kasjúmæjóHollari franskar með chili mæjó úr lífrænum kasjúhnetum. Það getur verið ótrúlega skemmtilegt að skera allskonar rótargrænmeti í strimla, baka í ofni og borða eins og franskar. Ef þú hefur ekki prófað að baka rauðrófur í ofni með olíu og salti þá mæli ég með því að prófa það, þær gætu komið þér skemmtilega á óvart. Ég hef verið að leggja áherslu á að borða hreint matarræði, velja lífrænt og sniðganga öll aukaefni síðustu vikur og hef verið að vinna mikið með kasjúhnetur í dressingar og sósur. Kasjúhnetur eru frábærar í sósur, áferðin verður merkilega creamy og í þokkabót verður sósan full af næringu. Hér er ég með chili kasjú “mæjó” sem passar einstaklega vel með rótargrænmetisfrönskum.
Múmíukökur með OREO MilkaEinstaklega bragðgóðar og krúttlegar hrekkjavöku smákökur. Þær innihalda Milka Oreo súkkulaði ásamt hvítu súkkulaði sem gerir þær svo ljúffengar. Tilvalið að útbúa með börnunum um helgina. Svo er einnig sniðugt að skella í þær fyrir jólin og þá er hægt að sleppa augunum og jafnvel gera þær minni.
Grænt salat með steiktum kjúklingabaunumBaunir úr dós er svo handhægur og fljótlegur próteingjafi. Ég er með æði fyrir lífrænum kjúklingabaunum núna og mér finnst svo gott að steikja þær í smá stund á pönnu með kryddum til að setja útá stórt og gott salat og þar með gera það matmeira og næringaríkara. Þú getur í raun notað hvaða krydd eða kryddblöndur sem er. Ég er að dýrka tilbúnu kryddblöndurnar frá Kryddhúsinu, að þessu sinni valdi ég miðausturlenska kryddblöndu sem mér finnst passa einstaklega vel með fersku tahinisósunni. Baunir innihalda ekki bara prótein heldur einnig vítamín, steinefni og trefjar, sannkölluð “all in one” fæða. Ég myndi einnig segja að lífrænar baunir úr dós séu hinn fullkomni skyndibiti fyrir litlu krílin. Fyrir utan hvað þær eru hollar og góðar eru þær líka skemmtilegar fyrir litla putta.
Lífrænir súkkulaði- & hnetuklattarÞessar litlu kökur eru mjög þéttar í sér og eru í raun prótínstykki í dulargervi. Þær eru hveitilausar, pakkaðar af næringu, góðri fitu og prótíni. Í þeim eru einungis lífræn gæða hráefni. Það er vel hægt að skipta út hrásykrinum fyrir sykurlausa sætu og eru þær þá í raun orðnar mjög kolvetnasnauðar. Þær hagga varla blóðsykrinum og gefa sérlega góða orku. Ég geri yfirleitt stóran skammt og frysti. Tek út eina og eina sem ég nýt með góðum kaffibolla eða tek með mér í nesti.
Ferskar og fljótlegar satay kjúklingavefjurÞað verður allt svo dásamlegt sem sett er inn í vefjur og þessar eru engin undantekning. Sósurnar frá Blue Dragon koma með asískt yfirbragð í matseldina og Satay sósan frá þeim er sjúklega góð og hægt að nota á fjölbreyttan hátt. Ég nota hana almennt mikið í kjúklingarétti en hérna ákvað ég að útbúa vefjur sem eru í senn fljótlegar, bragðgóðar og fallegar! Kjúklingurinn passar ótrúlega vel með sósunni og ferskt og stökkt grænmetið er fullkomið með. Það tekur enga stund að útbúa vefjurnar og þær eru líka alveg frábærar í nestisboxið. Blue Dragon Satay sósan fæst í öllum helstu matvöruverslunum.
Butter Chicken PizzaEr eitthvað betra en dýrindis máltíð sem er auðvelt að gera? Skemmtilegt og auðvelt fjölskylduuppáhald, þessi pizza á örugglega eftir að slá í gegn hjá öllum við matarborðið! Butter Chicken karrísósan frá Patak´s gefur henni ljúffengan, grillaðan ilm. Butter Chicken sósan frá Patak´s fæst í öllum helstu matvöruverslunum.
Korma rækjur með mangó3 einföld skref til Indlands með Patak´s! Upplifðu Indland við matarborðið heima. Aðeins 7 innihaldsefni sem tekur enga stund að útbúa dýrinds máltíð úr.
Gnocchi bakaGnocchi er þéttara í sér og stífara undir tönn en almáttugur þessi baka var undursamleg og virkilega gaman að prófa að breyta aðeins út af vananum með hefðbundið pasta. Ef þetta er ekki ekta kósýmatur þá veit ég ekki hvað!
1 22 23 24 25 26 116