Súkkulaðibitakökur með karamellukeimHér kemur ein klassísk þar sem ég var bæði að prófa að nota brætt smjör (í stað smjörs við stofuhita) og Milka Daim súkkulaði sem er eitt af okkar uppáhalds og útkoman var stórfengleg.SlöngukakaÞessi súkkulaðikaka er guðdómleg og kremið ekki síðra. Slöngukakan krefst þess að þið hafið smá tíma til þess að baka og skreyta en allir ættu að ráða við hana. Síðan er afar hentugt að skera hana í sneiðar þegar hún er í laginu eins og slanga.Indverskur kjúklingaréttur á 20 mínútumHér kemur dásamlegur kjúklingaréttur sem var tilbúinn á 20 mínútum svo það er ekki lengur afsökun fyrir því að prófa ekki að skella í indverskt!Cacio a pepe með smá twisti eða spagettí með piparpecorino smjörbolluCacio a pepe er rammítalskur spagettíréttur sem er venjulega gerður með olíu, pecorino osti og pipar. Þessi réttur er afar einfaldur og tekur enga stund að gera. Ég mæli með því að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat með honum til að fá smá ferskleika með smjörbragðinu. Rótargrænmetisfranskar með spicy kasjúmæjóHollari franskar með chili mæjó úr lífrænum kasjúhnetum. Það getur verið ótrúlega skemmtilegt að skera allskonar rótargrænmeti í strimla, baka í ofni og borða eins og franskar. Ef þú hefur ekki prófað að baka rauðrófur í ofni með olíu og salti þá mæli ég með því að prófa það, þær gætu komið þér skemmtilega á óvart. Ég hef verið að leggja áherslu á að borða hreint matarræði, velja lífrænt og sniðganga öll aukaefni síðustu vikur og hef verið að vinna mikið með kasjúhnetur í dressingar og sósur. Kasjúhnetur eru frábærar í sósur, áferðin verður merkilega creamy og í þokkabót verður sósan full af næringu. Hér er ég með chili kasjú “mæjó” sem passar einstaklega vel með rótargrænmetisfrönskum. Múmíukökur með OREO MilkaEinstaklega bragðgóðar og krúttlegar hrekkjavöku smákökur. Þær innihalda Milka Oreo súkkulaði ásamt hvítu súkkulaði sem gerir þær svo ljúffengar. Tilvalið að útbúa með börnunum um helgina. Svo er einnig sniðugt að skella í þær fyrir jólin og þá er hægt að sleppa augunum og jafnvel gera þær minni.Grænt salat með steiktum kjúklingabaunumBaunir úr dós er svo handhægur og fljótlegur próteingjafi. Ég er með æði fyrir lífrænum kjúklingabaunum núna og mér finnst svo gott að steikja þær í smá stund á pönnu með kryddum til að setja útá stórt og gott salat og þar með gera það matmeira og næringaríkara. Þú getur í raun notað hvaða krydd eða kryddblöndur sem er. Ég er að dýrka tilbúnu kryddblöndurnar frá Kryddhúsinu, að þessu sinni valdi ég miðausturlenska kryddblöndu sem mér finnst passa einstaklega vel með fersku tahinisósunni. Baunir innihalda ekki bara prótein heldur einnig vítamín, steinefni og trefjar, sannkölluð “all in one” fæða. Ég myndi einnig segja að lífrænar baunir úr dós séu hinn fullkomni skyndibiti fyrir litlu krílin. Fyrir utan hvað þær eru hollar og góðar eru þær líka skemmtilegar fyrir litla putta.Lífrænir súkkulaði- & hnetuklattarÞessar litlu kökur eru mjög þéttar í sér og eru í raun prótínstykki í dulargervi. Þær eru hveitilausar, pakkaðar af næringu, góðri fitu og prótíni. Í þeim eru einungis lífræn gæða hráefni. Það er vel hægt að skipta út hrásykrinum fyrir sykurlausa sætu og eru þær þá í raun orðnar mjög kolvetnasnauðar. Þær hagga varla blóðsykrinum og gefa sérlega góða orku.
Ég geri yfirleitt stóran skammt og frysti. Tek út eina og eina sem ég nýt með góðum kaffibolla eða tek með mér í nesti. Ferskar og fljótlegar satay kjúklingavefjurÞað verður allt svo dásamlegt sem sett er inn í vefjur og þessar eru engin undantekning. Sósurnar frá Blue Dragon koma með asískt yfirbragð í matseldina og Satay sósan frá þeim er sjúklega góð og hægt að nota á fjölbreyttan hátt. Ég nota hana almennt mikið í kjúklingarétti en hérna ákvað ég að útbúa vefjur sem eru í senn fljótlegar, bragðgóðar og fallegar! Kjúklingurinn passar ótrúlega vel með sósunni og ferskt og stökkt grænmetið er fullkomið með. Það tekur enga stund að útbúa vefjurnar og þær eru líka alveg frábærar í nestisboxið. Blue Dragon Satay sósan fæst í öllum helstu matvöruverslunum.Butter Chicken PizzaEr eitthvað betra en dýrindis máltíð sem er auðvelt að gera? Skemmtilegt og auðvelt fjölskylduuppáhald, þessi pizza á örugglega eftir að slá í gegn hjá öllum við matarborðið! Butter Chicken karrísósan frá Patak´s gefur henni ljúffengan, grillaðan ilm. Butter Chicken sósan frá Patak´s fæst í öllum helstu matvöruverslunum.Korma rækjur með mangó3 einföld skref til Indlands með Patak´s! Upplifðu Indland við matarborðið heima. Aðeins 7 innihaldsefni sem tekur enga stund að útbúa dýrinds máltíð úr. Gnocchi bakaGnocchi er þéttara í sér og stífara undir tönn en almáttugur þessi baka var undursamleg og virkilega gaman að prófa að breyta aðeins út af vananum með hefðbundið pasta. Ef þetta er ekki ekta kósýmatur þá veit ég ekki hvað!Vöfflur með Daim rjómaVöfflur með rjómaosta- og karamellurjóma sem slær alla útaf laginu!Heit íssósaÞað er fátt betra og einfaldara en heimagerð, heit íssósa! Það má nota hvaða ís sem er með sósunni og gott er að leyfa henni aðeins að standa og þykkna áður en hún fer á ísinn. Ef þið viljið útbúa fljótlegan og ljúffengan eftirrétt þá er ís með heitri súkkulaðisósu málið!SilungssneiðarÞað þarf ekki að vera flókið til að vera gott! Ég elska þegar eitthvað svona einfalt slær algjörlega í gegn. Það tekur enga stund að smella í þessa dásemd og til þess að flýta enn frekar fyrir getið þið keypt niðurskorinn silung/lax. Rjómaostur með lauk fullkomnar þetta síðan allt saman!
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Smelltu hér til að kynna þér skilmála síðunnar.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-functional
11 months
The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional".
cookielawinfo-checkbox-necessary
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
viewed_cookie_policy
11 months
The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.