Kosmoskúlurnar hans pabbaElsku pabbi minn á afmæli í dag og í tilefni dagsins deili ég með ykkur uppskrift af nammikúlunum hans. Pabbi er mögulega mesti sælkeri sem ég þekki en hefur nú gert rosalega breytingu á sínum matarvenjum síðustu mánuði. Hlakka til að segja ykkur meira frá því og hversu magnaða hluti hann hefur upplifað í kjölfarið. Sælkerinn blundar alltaf í honum svo hann fór að búa sér til hollar lífrænar nammikúlur til að hafa með sér í vinnuna og til að bjóða barnabörnunum og vinum uppá. Pabbi hélt fyrirlestur um daginn í lífspekifélaginu og eftir fyrirlesturinn bauð hann gestum uppá þessar dásamlega góðu kúlur sem hann kallar Kosmoskúlur. Kúlurnar kláruðust hratt(!) og ég hef fengið leyfi til að deila uppskriftinni með ykkur.... eða við skulum segja að þetta sé svona sirka uppskriftin, hann er ekki mikið í því að mæla hráefnið og slumpar í hvert sinn. Eftir að hafa giskað mig áfram eftir ónákvæmum en mjög ástríðufullum útskýringum og að lokum gert smakk samanburð þá held ég að við séum komin nokkuð nálægt réttu hlutföllunum til að geta kallað þetta pabbakúlur. Minni ykkur á að pabbi er sælkeri og þær eru svo sannarlega dísætar! Við pabbi unnum færsluna í samstarfi við Rapunzel á íslandi en við erum sammála um að lífræni kókosinn frá Rapunzel er lang skemmtilegastur til að rúlla kúlum uppúr því hann er svo fínn.
Appelsínu- og súkkulaðihrákakaÉg hef aldrei verið mikið fyrir þessar "klassískur" kökur og tertur en ég er veik fyrir hrákökum. Þær eru akkurat passlega sætar fyrir minn smekk og mér finnst fylgja því aukin nautn að borða köku sem uppfyllir alla sykurlöngunina en á sama tíma inniheldur lífræn gæða hráefni sem mér líður vel af. Hér deili ég með ykkur hráköku með súkkulaði og appelsínubragði en ég fæ ekki nóg af þessari bragðsamasetningu. Það er kannski merki um að ég sé orðin fullorðin því sem barn fannst mér þetta vera svona fullorðinsbragð. Uppskriftin er frekar stór og dugir fyrir ca 12 manns…. já eða til að eiga í fyrstinum fyrir nokkur kósíkvöld. Kökuna þarf að gera degi áður en hana skal bera fram.
Ljóskur með öðruvísi ívafiHér er um að ræða ljóskur en samt ekki alveg ljóskur. Ljóskur eða blondies á ensku eru oftast andstæðan við brúnkur eða Brownies. Nánast eins nema í stað þess að vera dökkar eru þær ljósar og úr hvítu súkkulaði. Þessar hér eru akkurat þannig en þó ekki. Ég get best lýst þeim þannig að þær eru eins og blanda af ljóskum og kransaköku. Kranskökuáferðin kemur líklegast því ég nota möndlumjöl. Kökuna er ótrúlega einfalt að gera enda örfá hráefni í henni. Ég notaði dásamlega möndlusmyrju frá Rapunzel í staðinn fyrir smjör og var útkoman skemmtilega öðruvísi.
Salat með sólþurrkuðum tómötum, ólífum og engifer-tahinidressinguHér erum við með salat með grænum ólífum, sólþurrkuðum tómötum og rauðlauk sem mér finnst passa svo vel saman og tahinisósan fer rosalega vel með ólífunum. Ég er að nota lífrænar ólífur frá Rapunzel en ég er mikil ólífukona og börnin mín elska ólífur og við erum öll sammála um að þetta séu langbestu grænu ólífurnar. Uppskriftin dugir mér í 3 fullar auðmeltanlegar máltíðir en salatið virkar alveg jafn vel sem meðlæti ef maður kýs það frekar. Ég heyri alltof oft niðrandi orð um salat. Salat dettur inn í flokkinn “kanínufóður” eða einhverskonar megrunarkúr. Veganar borða bara salat heyrir maður stundum í þeim tón eins og það væri slæmt. Ég skal leiðrétta það að allir veganar borða ekki bara salat en það þyrfti þó ekki að vera slæmt að borða bara salat,… þ.e.a.s ef það er alvöru salat ;). Það súrealíska er að veganar eru þeir sem geta sjaldnast fengið alvöru salat á veitingastöðum. Vegan hamborgari er svona meiri klassík á vegan matseðlinum. Gott salat fyrir mér er salat sem uppfyllir skilyrðin um fjölbreytt bragð, áferð og fyllingu. Ég vil finna súrt, sætt og salt bragð, ég vil finna fyrir mjúkri og crunchy áferð og góð dressing er mikilvæg. Svo vil ég líka geta orðið södd af því svo það má vera bara frekar stórt. Það sem kannski er vanmetið en mér finnst líka mjög mikilvægt er að það sé fallegt og litríkt. Við höfum heyrt orðatiltækið að við borðum með augunum og það er bara hellingssannleikur í því. Við fáum vatn í munninn við það að sjá eitthvað girnilegt og er það augunum að þakka, augun senda skilaboð til heilans að máltíð sé í vændum og munnvatnsframleiðslan hefst sem er fyrsta stig meltingarinnar. Mæli með að prófa þetta meðvitað og athuga hvað þú upplifir.
Möndlukurl, salatkurl eða máltíðarkurl sem gefur máltíðinni þetta litla extraPoppaðu upp salatið með möndlukurli. Möndlukurl er akkurat það sem þarf til að poppa upp hvaða salat sem er. Já eða í raun hvaða máltíð sem er, það er nefninlega líka gott t.d. útá dahl, súpur eða aðra pottrétti. Ég á nánast alltaf svona í krukku uppí hyllu. Ég nota þetta sérstaklega mikið á salöt þessa dagana bæði til að upphefja brögðin úr salatinu þar sem það er salt í kurlinu, en einnig til að bæta við auka fitu og skemmtilegu crunchi. Þetta er einmitt frábær leið til að bæta við látlausum kaloríum eða ofurfæðu og gera salatið meira saðsamt og fjölbreytt af næringu. Í kurlinu er ég með hampfræ sem gefa okkur prótein og omega 3 en það er einmitt hægt að leika sér með samsetningar og jafnvel nota söl eða beltisþara í stað saltsins sem inniheldur bæði góð sölt og joð. Einnig væri hægt að setja grænt duft eða krydd, þið skiljið mig, möguleikarnir eru endalausir ;). Hér deili ég með ykkur mjög einfaldri útgáfu af þessum sannkallaða salat"poppara". Þú getur notað hvaða hnetur sem er en ég kýs að velja lífrænar möndlur þessa dagana þar sem þær eru basískar. Ég geng svo einu skrefi lengra og "vek" möndlurnar og graskersfræin áður en ég nota þær. Þá legg ég þær/þau í bleyti í 12 tíma og þurrka þær svo í þurkofni þangað til þær eru orðnar þurrar, einnig hægt að nota bakaraofn, stilla á 40 gráður og hafa í gangi í nokkra klukkutíma með smá rifu á hurðinni, t.d skella viskustykki á milli. Með því að vekja möndlurnar eykst næringarupptakan í líkamanum en þessu skrefi er að sjálfsögðu hægt að sleppa.
Maríneraður steiktur fiskur með bræddu hvítlaukssmjöriÞessi fiskréttur er afar góður ef þið eruð að leita eftir tilbreytingu frá hefðbundnum steiktum fiski. Rétturinn er í senn bragðmikill og auðveldur að gera. En galdurinn hér er að marínera fiskinn í Caj P hvítlauks grillolíu. Því lengur því betra, en ég hef hann stundum alveg yfir nótt eða frá morgni til kvöldmats í maríneringunni. Best er að leyfa fiskinum að marínerast allavega í 2-4 tíma.
Djúpsteiktar kjúklingalundir með sinnepssósuÞað er þannig með allt sem er djúpsteikt að það er auðvitað guðdómlegt. Sinnepssósan passar undurvel með þessu og nú mæli ég með því að þið prófið! Þessi réttur getur síðan ýmist verið snarl með góðum leik eða sem kvöldmatur, hádegismatur eða hvað sem ykkur dettur í hug!
Roast beef vefjaSælkeravefja með vel af roast beef kjöti og Heinz Sandwich spread sósu.
1 18 19 20 21 22 116