fbpx

Kosmoskúlurnar hans pabba

Elsku pabbi minn á afmæli í dag og í tilefni dagsins deili ég með ykkur uppskrift af nammikúlunum hans. Pabbi er mögulega mesti sælkeri sem ég þekki en hefur nú gert rosalega breytingu á sínum matarvenjum síðustu mánuði. Hlakka til að segja ykkur meira frá því og hversu magnaða hluti hann hefur upplifað í kjölfarið. Sælkerinn blundar alltaf í honum svo hann fór að búa sér til hollar lífrænar nammikúlur til að hafa með sér í vinnuna og til að bjóða barnabörnunum og vinum uppá. Pabbi hélt fyrirlestur um daginn í lífspekifélaginu og eftir fyrirlesturinn bauð hann gestum uppá þessar dásamlega góðu kúlur sem hann kallar Kosmoskúlur. Kúlurnar kláruðust hratt(!) og ég hef fengið leyfi til að deila uppskriftinni með ykkur.... eða við skulum segja að þetta sé svona sirka uppskriftin, hann er ekki mikið í því að mæla hráefnið og slumpar í hvert sinn. Eftir að hafa giskað mig áfram eftir ónákvæmum en mjög ástríðufullum útskýringum og að lokum gert smakk samanburð þá held ég að við séum komin nokkuð nálægt réttu hlutföllunum til að geta kallað þetta pabbakúlur. Minni ykkur á að pabbi er sælkeri og þær eru svo sannarlega dísætar! Við pabbi unnum færsluna í samstarfi við Rapunzel á íslandi en við erum sammála um að lífræni kókosinn frá Rapunzel er lang skemmtilegastur til að rúlla kúlum uppúr því hann er svo fínn.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 200 g pekanhnetur
 100 g valhnetur
 2 msk lífrænt kakó
 13 stk döðlur*
 1 dl lífrænar rúsínur, ég nota dökkar frá Rapunzel
 2 msk lífrænar rúsínur, ég nota dökkar frá Rapunzel
 0,50 dl kókosolía
 1 dl lífrænn kókos til að velta uppúr, ég nota frá Rapunzel en hann er alveg örfínn og æðislegur til að rúlla uppúr.

Leiðbeiningar

1

Byrjið á að setja pekan- og valhnetur og kakó í matvinnsluvél og malið niður í kurl.

2

Bætið svo við döðlum, rúsínum og kókosolíu og blandið vel, þangað til deigið er orðið klístrað. *Döðlumagnið fer svolíitð eftir því hversu stórar eða mjúkar döðlurnar eru, ef notaðar eru ferskar er td hægt að nota færri þar sem þær eru klístarðari en þessar þurrkuðu en döðlurnar er það sem heldur kúlunum saman. Það er líka hægt að nota blöndu af þurrkuðum og ferskum.

3

Takið ca matskeið af deigi í einu og klessið svolítið saman og mótið svo kúlu.

4

Veltið kúlunum svo uppúr kókos.

5

Tips: Mér finnst best að setja kókos í nestisbox, setja nokkrar kúlur ofan í boxið, loka því og hrista það til. Mér finnst það lang fljótlegasta og snyrtilegasta aðferðin.

Verði ykkur að góðu.

MatreiðslaMatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
SmjördeigshjörtuÞað getur verið svo ljúft að baka eitthvað sem er ofureinfalt en á sama tíma ljúffengt og fallegt. Þessi uppskrift…
MYNDBAND
JarðaberjarósirJarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn 🌹🥂 Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem…
MYNDBAND
JarðaberjabollurEinfaldar og bragðgóðar vatnsdeigsbollur fylltar með jarðarberjarjóma og toppaðar með hvítu súkkulaði. Hér eru notuð bragðgóðu jarðarberin frá Driscolls í…