Allra bestu súkkulaðibitakökurnar hennar MonikuÞessar súkkulaðibitakökur slá allar aðrar út, það er bara staðreynd! Ég hef bakað þær ótal sinnum en í grunninn er þetta uppskrift sem leikkonan Courtney Cox birti á Instagram síðu sinni. Því ganga þessar kökur undir nafninu „Moniku kökurnar “ af augljósum ástæðum. Þær hafa algjörlega slegið í gegn hjá öllum þeim sem hafa smakkað þær en þær ná að vera stökkar að utan en líka mjúkar en um leið smávegis seigar. Þær innihalda vænt magn af súkkulaði og ekta vanillu sem gerir bragðið algerlega ómótstæðilegt.
Það eru nokkur atriði sem skilur þær að frá öðrum. Í fyrsta lagi nota ég bæði venjulegt hveiti og brauðhveiti en þær verða smá seigar með því síðarnefnda. Einnig skiptir máli að nota bæði venjulegan hvítan sykur með púðursykrinum. Þá er þetta mikla magn súkkulaðis algerlega nauðsynlegt og ég mæli ekki með því að freistast til þess að minnka það. Það er einnig mikilvægt að saxa súkkulaðið mjög gróft. Hver kaka er mjög stór og það er líka mikilvægt að halda stærðinni. Það er þá frekar hægt að skera hverja tilbúna köku í tvennt eða fernt ef það á að bera þær á borð fyrir gesti. Að síðustu er mjög mikilvægt að kæla deigið í að minnsta kosti sólarhring áður en þær eru bakaðar, en jafnvel fara upp í 48 stundir eða lengur.Vegan Paris-Brest bollur með pralíni og vanillurjómakremiParis-Brest er einn allra besti eftirréttur sem til er á jörðinni. Eða það finnst mér að minnsta kosti. Eftirrétturinn er upprunninn í Frakklandi eins og nafnið gefur til kynna og eru til ýmsar útgáfur af honum.
Yfirleitt er þetta vatnsdeig sem mótað er í hring og fyllt með pralín og vanillukremi (Crème Pâtissière). Það er eitthvað við þessa pralín-vanillukrems blöndu sem er algerlega ómótstæðilegt og það er ekki oft sem hægt er að nálgast þennan eftirrétt á Íslandi.
Ég var heillengi að prófa mig áfram með gerð þessarar bollu og gerði ótal útgáfur af henni. Þessi útgáfa kom lang best út. Bollan sjálf er úr smjördeigi sem er nánast án undantekninga vegan. Heimagerða pralínið er gert úr ristuðum heslihnetum og möndlum og vanillukremið úr haframjólk og hafrarjóma ásamt góðri vanillu og vegan smjöri. Þessi samsetning er algerlega himnesk og ég skora á ykkur að prófa þessa dýrð!Mjúkir bananasnúðar með súkkulaðifyllingu og hnetusmjörskremi Milt bananabragðið af snúðunum fer ótrúlega vel saman með Bionella súkkulaðismjörinu og kanilsykrinum í fyllingunni. Mjúkar glútenlausar piparkökumuffinsÍ desember er mikill hátíðarspenningur og margir vilja gera vel við sig. Ég verð alltaf fyrir innblástri af jólabakstri í desember og set mér skemmtilegar áskoranir að setja hátíðargúmmelaði í aðeins næringarríkari búning. Piparkökumuffins var það sem ég fékk á heilann. Bakstur er algjör eðlisfræði og eftir nokkrar tilraunir þá öðlaðist ég enn meiri skilning á bakstri. Eplaedik og matarsódi gerir galdur hef ég komist að í vegan bakstri og hörfræ sjá svo sannarlega um hlutverk eggja. Hér höfum við mjúkar, fluffy og ótrúlega góðar piparkökumuffins sem eru glútenlausar og án hvíts sykur þó lygilegt sé.Hátíðleg kókosterta með stórkostlegu súkkulaðikremiÞessi sparilega terta er fullkomin fyrir alla unnendur kókoss og súkkulaðis. Það er smá bounty fílíngur í henni en á einhvern fágaðan hátt. Dúnmjúkir kókosbotnarnir fara einstaklega vel með þessu unaðslega súkkulaðikremi sem toppar allar aðrar súkkulaðikrems uppskriftir að mínu mati. Það er fínlegt kókosbragð af kreminu vegna kókoskremsins sem er í því og brædda dökka súkkulaðið gerir það algerlega fullkomið. Þessi drottning sómir sér vel á hvaða veisluborði sem er yfir hátíðarnar.
Kókoskremið frá Rapunzel er vegan og það er lítið mál að veganvæða uppskriftina. Þá er hægt að nota aquafaba í stað eggjanna, Oatly mjólk í stað mjólkurvaranna og vegan smjör í stað venjulegs smjörs.
Cointreau konfektmolarÞað er fátt sem toppar heimatilbúnar jólagjafir og ekki skemmir fyrir ef hún er himnesk á bragðið. Hér er ein slík hugmynd, Cointreau konfektmolar búnir til úr kransakökumassa og bræddu súkkulaði með appelsínubragði.Súkkulaðibitakökur með saltkaramellusúkkulaðiHér er á ferðinni súkkulaðibitakökur með saltkaramellusúkkulaði. Kökurnar eru mjúkar í miðjunni og brúnaða smjörið gefur þeim extra gott bragð. Lykilatriði er að baka þær ekki of lengi og toppa þær með smá bræddu súkkulaði. Hrekkjavöku drauganammiLjúffengt hrekkjavökusælgæti sem inniheldur rice krispies, Tony’s mjólkursúkkulaði, hnetusmjör, síróp og skreytt með hvít súkkulaði draugum. Súkkulaðinu sjálfu er skipt í ójafna parta en það er gert til að endurspegla misréttið sem á sér stað við framleiðslu kakóbauna sem er svo algengt í dag. Markmiðið hjá Tony’s er að framleiða gæða súkkulaði algerlega án þrælkunar. Vanillukaka með rjómaostakremiHér kemur ein fallega bleik kaka með rjómaostakremi. OREO Súkkulaðikaka með smjörkremiSúkkulaðikaka með OREO smjörkremi sem allir elska.OREO HrekkjavökubollakökurBollakökur með smjörkremi og OREO hrekkjavökuskreytingu.Dúnmjúkir & litríkir vegan kleinuhringirÉg hef oft talað um það að hvað mér finnst gaman að gera djúsí og góðar vegan uppskriftir. Í kringum mig eru all mörg börn sem hafa ýmis óþol og ofnæmi og þá er lang einfaldast að útbúa vegan gúmmelaði fyrir krakkana og öll geta þá fengið sér það sama. Ég gerði þessa kleinuhringi um daginn og þeir komu alveg ótrúlega skemmtilega á óvart. Þeir eru mjúkir og bragðgóðir og hægt að leika sér endalaust með skraut og glassúr. Í stað venjulegrar mjólkur notaði ég Oatly haframjólk og það kom vel út, bæði í kleinuhringjunum sjálfum sem og glassúrnum sem ég dýfði þeim í.
Þessa verðið þið bara að prófa!Veglegur marengs á veisluborðiðFullkominn veislu marengs með ferskum berjum og karamellusósu.Epla crumble með Cadbury Curly Wurly SquirliesFrábær eplabaka með karamellu, borin fram með ís.Guðdómleg bökuð ostakaka með heimagerðri saltkaramelluÞað er ekki algengt að sjá bakaðar ostakökur á íslenskum veisluborðum, mig grunar að það sé vegna þess að þær geta verið svolítið tímafrekar en afraksturinn er algjörlega stórkostlegur og alveg þess virði að dútla við gerð þeirra. Þessi er alveg hreint sjúkleg, í botninn nota ég hafrakexið frá Nairn‘s með saltkaramellunni. Fyllingin er klassísk vanillu ostakaka og á toppinn smyr ég heimagerðri saltkaramellu sem fátt toppar. Þið verðið að prófa þessa fyrir næstu veislu eða saumaklúbbana sem fara að hefja göngu sína aftur eftir gott sumarfrí!
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Smelltu hér til að kynna þér skilmála síðunnar.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-functional
11 months
The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional".
cookielawinfo-checkbox-necessary
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
viewed_cookie_policy
11 months
The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.