fbpx

Vegan Paris-Brest bollur með pralíni og vanillurjómakremi

Paris-Brest er einn allra besti eftirréttur sem til er á jörðinni. Eða það finnst mér að minnsta kosti. Eftirrétturinn er upprunninn í Frakklandi eins og nafnið gefur til kynna og eru til ýmsar útgáfur af honum. Yfirleitt er þetta vatnsdeig sem mótað er í hring og fyllt með pralín og vanillukremi (Crème Pâtissière). Það er eitthvað við þessa pralín-vanillukrems blöndu sem er algerlega ómótstæðilegt og það er ekki oft sem hægt er að nálgast þennan eftirrétt á Íslandi. Ég var heillengi að prófa mig áfram með gerð þessarar bollu og gerði ótal útgáfur af henni. Þessi útgáfa kom lang best út. Bollan sjálf er úr smjördeigi sem er nánast án undantekninga vegan. Heimagerða pralínið er gert úr ristuðum heslihnetum og möndlum og vanillukremið úr haframjólk og hafrarjóma ásamt góðri vanillu og vegan smjöri. Þessi samsetning er algerlega himnesk og ég skora á ykkur að prófa þessa dýrð!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Bollurnar
 2 stk rúllur smjördeig
 Vegan vanillukrem (Uppskrift fylgir)
 Heimagert Pralín (Uppskrift fylgir)
 Ristaðar heslihnetur til skrauts
Vegan vanillukrem
 180 ml Oatly iKaffe haframjólk
 80 ml Oatly VISP hafrarjómi
 0,50 tsk vanillukorn
 35 g hrásykur
 30 g maizena mjöl
 25 g vegan smjör mjúkt
 salt á hnífsoddi
Hafrarjóminn
 1 stk hafraþeytirjómi VISP frá Oatly
 1 tsk vanilludropar
 1 tsk sítrónusafi
 Þeytið allt vel saman þar til rjóminn er stífþeyttur.
Pralín
 120 g möndlur
 120 g heslihnetur
 150 g sykur

Leiðbeiningar

Bollurnar
1

Hitið ofninn í 180°C blástur.

2

Rúllið deiginu út og skerið út kringlóttar kökur með móti eða glasi, stærðin fer eftir smekk en mér finnst betra að hafa þær ekki mikið stærri en 5cm.

3

Leggið kökurnar á bökunarpappír, smyrjið hverja köku með hafrarjóma og leggið aðra köku yfir. Penslið yfir efri kökuna með hafrarjóma.

4

Bakið í 15-20 mín þar til bollurnar eru orðnar gylltar. Takið bollurnar út og látið kólna.

Vegan vanillukrem
5

Setjið vanillukorn, hrásykur, maízena mjöl og salt saman í skál.

6

Setjið mjólkina og rjómann saman í pott og hitið að suðu.

7

Hellið ca. 1/4 af mjólkinni út í sykurblönduna og hrærið vel. Hellið restinni saman við smám saman.

8

Setjið blönduna aftur í pottinn og sjóðið við vægan hita í 2-3 mín þar til búðingurinn þykknar. Takið pottinn af hellunni og hrærið smjörinu saman við með sleikju.

9

Hellið búðingnum í sigti og þrýstið honum með sleikju í gegnum sigtið í skál. Setjið plastfilmu yfir og látið hana alveg snerta yfirborðið á búðingnum svo það komist ekki skán á hann. Kælið í að minnsta kosti 2-3 klst áður en hann er notaður.

Pralín
10

Hitið ofninn í 150°C blástur.

11

Setjið bökunarpappír á plötu og dreifið hnetunum á plötuna. Ristið í ofninum í 15 mín.

12

Setjið hreint viskastykki á borðið og hellið hnetunum á það. Nuddið hýðið af þeim með því að nudda þær saman viskastykkinu. Athugið að hýðið fer ekki af möndlunum.

13

Bræðið sykurinn þar til hann verður og aðeins farinn að dökkna, varist að brenna hann.
Hellið yfir hneturnar og látið kólna alveg.

14

Setjið í matvinnsluvél og vinnið í að minnsta kosti 10 mín. Fyrst myljast hneturnar með sykrinum og eru nánast eins og granóla, haldið áfram að láta vélina vinna og skafið niður á milli ef þarf. Hafið bara trú á ferlinu, eftir nokkrar mínútur fer þetta að breytast í „smjör“, haldið þá áfram að vinna svo áferðin verði fínleg á pralíninu.

Samsetning:
15

Blandið saman kreminu við rjómann í hlutföllunum 1/4 krem á móti 3/4 rjóma. Kremið er frekar stíft beint úr kæli og það er gott að hræra aðeins í því áður en því er blandað saman við rjómann. Hlutföllin eru: 1 msk krem á móti 4 msk af rjóma. Það má auðvitað leika sér með hlutföllin eftir smekk. Mér finnst best að setja kremið á bolluna með því að setja það í sprautupoka.

16

Skerið bollu í tvennt. Smyrjið botninn með pralíni og sprautið vanillukremrjóma yfir. Setjið lokið á, sprautið smá rjómakremi á toppinn og skreytið með ristuðum heslihnetum.

Matreiðsla, MatargerðMerking, ,

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…