Salat með sólþurrkuðum tómötum, ólífum og engifer-tahinidressinguHér erum við með salat með grænum ólífum, sólþurrkuðum tómötum og rauðlauk sem mér finnst passa svo vel saman og tahinisósan fer rosalega vel með ólífunum. Ég er að nota lífrænar ólífur frá Rapunzel en ég er mikil ólífukona og börnin mín elska ólífur og við erum öll sammála um að þetta séu langbestu grænu ólífurnar. Uppskriftin dugir mér í 3 fullar auðmeltanlegar máltíðir en salatið virkar alveg jafn vel sem meðlæti ef maður kýs það frekar. Ég heyri alltof oft niðrandi orð um salat. Salat dettur inn í flokkinn “kanínufóður” eða einhverskonar megrunarkúr. Veganar borða bara salat heyrir maður stundum í þeim tón eins og það væri slæmt. Ég skal leiðrétta það að allir veganar borða ekki bara salat en það þyrfti þó ekki að vera slæmt að borða bara salat,… þ.e.a.s ef það er alvöru salat ;). Það súrealíska er að veganar eru þeir sem geta sjaldnast fengið alvöru salat á veitingastöðum. Vegan hamborgari er svona meiri klassík á vegan matseðlinum.
Gott salat fyrir mér er salat sem uppfyllir skilyrðin um fjölbreytt bragð, áferð og fyllingu. Ég vil finna súrt, sætt og salt bragð, ég vil finna fyrir mjúkri og crunchy áferð og góð dressing er mikilvæg. Svo vil ég líka geta orðið södd af því svo það má vera bara frekar stórt. Það sem kannski er vanmetið en mér finnst líka mjög mikilvægt er að það sé fallegt og litríkt. Við höfum heyrt orðatiltækið að við borðum með augunum og það er bara hellingssannleikur í því. Við fáum vatn í munninn við það að sjá eitthvað girnilegt og er það augunum að þakka, augun senda skilaboð til heilans að máltíð sé í vændum og munnvatnsframleiðslan hefst sem er fyrsta stig meltingarinnar. Mæli með að prófa þetta meðvitað og athuga hvað þú upplifir. Möndlukurl, salatkurl eða máltíðarkurl sem gefur máltíðinni þetta litla extraPoppaðu upp salatið með möndlukurli.
Möndlukurl er akkurat það sem þarf til að poppa upp hvaða salat sem er. Já eða í raun hvaða máltíð sem er, það er nefninlega líka gott t.d. útá dahl, súpur eða aðra pottrétti. Ég á nánast alltaf svona í krukku uppí hyllu. Ég nota þetta sérstaklega mikið á salöt þessa dagana bæði til að upphefja brögðin úr salatinu þar sem það er salt í kurlinu, en einnig til að bæta við auka fitu og skemmtilegu crunchi. Þetta er einmitt frábær leið til að bæta við látlausum kaloríum eða ofurfæðu og gera salatið meira saðsamt og fjölbreytt af næringu.
Í kurlinu er ég með hampfræ sem gefa okkur prótein og omega 3 en það er einmitt hægt að leika sér með samsetningar og jafnvel nota söl eða beltisþara í stað saltsins sem inniheldur bæði góð sölt og joð. Einnig væri hægt að setja grænt duft eða krydd, þið skiljið mig, möguleikarnir eru endalausir ;).
Hér deili ég með ykkur mjög einfaldri útgáfu af þessum sannkallaða salat"poppara". Þú getur notað hvaða hnetur sem er en ég kýs að velja lífrænar möndlur þessa dagana þar sem þær eru basískar. Ég geng svo einu skrefi lengra og "vek" möndlurnar og graskersfræin áður en ég nota þær. Þá legg ég þær/þau í bleyti í 12 tíma og þurrka þær svo í þurkofni þangað til þær eru orðnar þurrar, einnig hægt að nota bakaraofn, stilla á 40 gráður og hafa í gangi í nokkra klukkutíma með smá rifu á hurðinni, t.d skella viskustykki á milli. Með því að vekja möndlurnar eykst næringarupptakan í líkamanum en þessu skrefi er að sjálfsögðu hægt að sleppa.Hollar lakkrís- & sítrónukúlurMér ber skylda að vara ykkur við þessum kúlum….. því þær eru einfaldlega ávanabindandi. Þetta eru þær allra bestu kúlur sem ég hef nokkurntíman smakkað en ég er líka veik fyrir lakkrís. Þessar urðu til í september í fyrra þegar ég var að reyna að brjóta ákveðið venjumynstur þar sem ég leitaði mikið í sykur á kvöldin. Þessar uppfylltu allar mínar óskir og fullnægðu sykurþörfinni 100%. Mögulega gerði ég þessar kúlur í hverri viku í …. segjum bara langt tímabil. Svo ef þú ert á sama stað og ég var og langar að finna hollari kost til að grípa í yfir netflix þá mæli ég með að prófa þessar.
Þær slógu líka í gegn í afmælinu mínu en ég ákvað að halda lítið sykurlaust afmæli fyrir nánustu fjölskyldu og bauð uppá súrdeigsbrauð & álegg, fullt af ávöxtum og nokkrar tegundir af svona hollustu nammikúlum. Það besta var mögulega að krakkarnir fengu að njóta allra veitinganna og öllum leið vel á eftir.Lífrænt hrákex úr hörfræjumSíðustu vikur hef ég verið glúteinlaus og að prófa mig áfram með hráfæði og alltíeinu poppaði upp minning um hrákex með hörfræjum. Mig minnir að ég hafi smakkað svona kex í fyrsta sinn á gamla Gló veitingastaðnum þegar þau buðu alltaf uppá hráfæðirétt svo seinna fór mamma að spreyta sig á að gera svona kex…. þetta var mögulega áður en ég fékk áhuga á eldamennsku haha.
Jæja það var kominn tími á að endurskappa þessa minningu í eldhúsinu mínu. Ég nota þurkofn til að gera hrákexið en það er líka hægt að nota venjulegan bakaraofn. Ég var svo heppin að eignast þurkofn eftir að góð vinkona mín hún Audrey tók til í geymslunni og spurði mig hvort ég vildi eiga þurkofninn sem hún notaði aldrei. Hingað til hefur hann aðallega verið tekinn fram á sumrin til að gera grænkálssnakk en hann hefur komið sér einstaklega vel síðasta mánuðinn og er mögulega í stanslausri notkun. Þetta kex er eitt af því sem kemur úr þurrkofninum í hverri viku núna.Hrökkkex með karrý & epla kjúklingabaunasalatiGlútenlausa hrökkkexið frá Nairn‘s er alveg nýtt uppáhald hjá mér en það stökkt og létt í sér og passar ljómandi vel með allskonar góðum salötum og ostum. Það hentar sérlega vel þeim sem þurfa að sneiða hjá glúteni og óhætt er fyrir fólk með celiac sjúkdóm að njóta þess. Hrökkkexið er líka vegan og mig langaði að prófa að gera eitthvað djúsí vegan salat til að bera fram með því. Kjúklingabauna salatið kemur alveg ótrúlega á óvart og mæli eindregið með því að prófa þetta saman. Stórgott millimál eða sem léttur hádegismatur. Heimagerð möndlumjólk með kanil og vanilluHver er besta jurtamjólkin? Tegundirnar eru orðnar margar sem hægt er að kaupa útí búð sem er frábært og margar hverjar mjög góðar. Að mínu mati er þó engin sem toppar heimagerða möndlumjólk og ef þú hefur gert hana einu sinni er mjög líklegt að þú gerir hana aftur… og aftur! Það besta við heimagerða möndlumjólk er að þú veist nákvæmlega hvað er í henni og þú getur bragðbætt hana eins og þú vilt. Hér er ein með kanil, vanillu og döðlu til að sæta. Hún er æðisleg ein og sér, útá grautinn, í smoothieinn eða til að nota á over nigh oats.Hnetusmjörsklattar með dökku súkkulaðiÞessir klattar eru alveg ótrúlega bragðgóðir, einfaldir og fljótlegir. Allt í einni skál, óþarfi að kæla deigið og baksturstíminn er stuttur. Þeir eru vegan og henta því öllum sem forðast dýraafurðir og þeim sem eru annað hvort með mjólkur- eða eggjaofnæmi. Bragðlausa kókosolían frá Rapunzel er ótrúlega fjölhæf og hentar jafn vel í bakstur, hvort sem er smákökur eða annað bakkelsi, hvet ykkur til að prófa hana næst þegar á að baka eitthvað gómsætt.Einföld og fljótleg döðlukaka með kanilÞessi kaka er alveg fullkomin sunnudagskaka sem gott er að skella í með stuttum fyrirvara. Það er mjög einfalt að laga deigið og það þarf ekkert að bíða eftir því að hún kólni alveg. Krökkunum finnst þessi alveg dásamleg sem og okkur fullorðna fólkinu. Kakan er án dýraafurða og henta vel þeim sem sneiða hjá þeim. Möndlusmákökur með suðrænu ívafiHér eru kökur fyrir þá sem elska að hafa eitthvað gott að maula á á aðventunni með kaffinu, sem er þó ekki alveg dísætt eins og margar smákökur eiga til að vera. Þessar möndlukökur minna mig ögn á ítölsku kökurnar cantucci eða biscotti hvað bragðið varðar. Ekki dísætar en mátulega sætar til að hafa með kaffinu.
Ef þig langar að hafa kökurnar aðeins meira djúsí þá er hægt að setja dökkt súkkulaði á þær en ég gerði það við helmingin af kökunum, þar sem krakkarnir vildu þær með súkkulaði á. Ég hins vegar vil þær án súkkulaðis svo ykkar er valið. Ég notaði 85 % súkkulaði frá Rapunzel þar sem það er ekki of sætt og gefur djúpt súkkulaðibragð. Meginhráefnið og aðalstjarnan í kökunum er möndlusmjör og hakkaðar möndlur. Möndlusmjörið gefur kökunum þetta dásamlega möndlubragð. Hökkuðu möndlurnar gefa kökunum bit undir tönn sem ég elska. Ég notaði Rapunzel möndlusmjörið en það eru 100 % möndlur í því, auk þess sem það er lífrænt ræktað og algjör gæðavara.
Kökurnar eru stökkar á köntunum og svo mjúkar inn að miðju, en ég elska að hafa þær þannig. Ég baka þær þá á styttri tímanum, en ef þú vilt hafa þær alveg stökkar þá geturðu valið lengri tímann. Það sem skemmir síðan ekki fyrir er að kökurnar eru afar eindaldar að gera og tekur stuttan tíma að henda í þær. Deigið þarf ekkert að kólna né neitt vesen og því tilvalið fyrir óþolinmóða eins og mig. Team súkkulaði eða ekki súkkulaði, team stökkir kantar, mjúk miðja eða stökkar harðar biscotti kökur. Hér ræður þú ferðinni og útkoman eins og þú vilt hafa hana.Jólalegt brokkólísalat með rauðkáli og trönuberjumJólalegt brokkólísalat. Mögulega eru það trönuberin sem gera það jólalegt … og grænu liturinn í brokkólíinu. Rauðkál er líka svolítið hátíðlegt grænmeti er það ekki? Þetta er allavega einstaklega ferskt og fallegt salat með vott af hátíðlegu bragði sem passar ofboðslega vel með jólamatnum sem stundum getur verið þungur og saltur. Þetta salat er auðvitað gott allan ársins hring en einhvernegin höfum við verið að tengja það við jólin síðustu ár.PiparkökukúlurHvað er meira jóla en piparkökur? Hér erum við með hollar hrákúlur eða orkukúlur sem bragðast eins og piparkökur. Þessar toppa hefðbundnar piparkökur að mínu mati og mesti plúsinn er að þær gefa þér alvöru orku. Kanill, negull, malaður engifer og kardimommur eru kryddin sem galdra fram piparkökubragðið. Ég elska að nota lífrænar mjúkar kasjúhnetur í hrákúlur því þær eru pínu sætar en samt svo skemmtilega hlutlausar að öll krydd njóta sín svo vel.Hátíðarpiparmyntuís með ferskri myntu og BrowniedeigbotniÉg elska piparmyntu ís en mér hefur oft fundist erfitt að ná rétta piparmyntubragðinu þegar ég geri hann heimalagaðan. í ákvað ég að reyna að finna lausn á því og prófa að nota ferska myntu ásamt piparmyntudropum og viti menn. Útkoman var alveg eins og ég vildi hafa ísinn, alveg eins og út úr ísbúð ef ekki bara betri. Þar sem ég vildi hafa allt hágæða hráefni í honum ákvað ég að nota hágæða lífrænt ræktað fyllt piparmyntu og karamellu súkkulaði í hann sem er algjört möst.Pralín Panna Cotta með rjóma og ferskum hindberjumÞessi frábæra uppskrift er í senn fáránlega einföld, sparileg og að auki vegan. Það mun ekki nokkur sála átta sig á því hvað það tók stuttan tíma að gera þennan eftirrétt. Agar agar duftið er ótrúlega skemmtileg hráefni sem gaman er að leika sér með í stað matarlíms. Það þarf mjög lítið af því en ólíkt matarlími þarf það að sjóða með vökvanum í smá stund. Nirwana súkkulaðið frá Rapunzel er fullkomið í þennan rétt þar sem það er ljósara en margt vegan súkkulaði og fyllingin er algjörlega himnesk. Heimagerðar Ferrero Rocher kúlurEitt af mínu uppáhalds sælgæti eru Ferrero Rocher kúlurnar í gyllta bréfinu. Það er eitthvað við þessa blöndu af heslihnetum, súkkulaði og núggati sem ég stenst sjaldnast. Mig langaði að prófa að gera einhverja skemmtilega útgáfu af þeim heima þar sem ég gæti notast við lífræn og vegan hráefni. Ég skoðaði ýmsar útgáfur og prófaði llskonar og þessi blanda varð ofan á. Ristuð heslihneta klædd í konfektkápu sem er svo velt upp úr hökkuðum heslihnetum og svo dýft í súkkulaði. Algjörlega ómótstæðileg blanda! Þetta verðið þið að prófa.Kalkúnabringa með villisveppaskel og sósuLjúffeng kalkúnabringa með stökkri villisveppaskel og villisveppasósu.
Vefsíðan okkar notar vefkökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun á vefsíðunni fyrir notendur. Smelltu hér til að kynna þér skilmála síðunnar.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Cookie
Duration
Description
cookielawinfo-checkbox-analytics
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics".
cookielawinfo-checkbox-functional
11 months
The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional".
cookielawinfo-checkbox-necessary
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary".
cookielawinfo-checkbox-others
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other.
cookielawinfo-checkbox-performance
11 months
This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance".
viewed_cookie_policy
11 months
The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.