fbpx

Mangósalat með grilluðum andabringum

Hér er á ferðinni mangósalat með stökkri grillaðri andabringu, vorlauk, cashew hnetum og dásamlegri sósu sem toppar allt

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 2 Valette andabringur
 1/2 iceberg salat, saxað
 2 mangó, kjarnhreinsuð og afhýdd, skorin í litla bita
 1 búnt vorlaukar, smátt skornir
 50 g cashewhnetur, ristaðar
 1 handfylli kóríander (má sleppa)
Salatsósa
 120 ml ólífuolía
 1/2 tsk sesamolía frá Blue dragon
 4 msk hrísgrjónaedik frá Blue dragon
 2 msk hoisin sósa frá Blue dragon
 1 tsk sykur
 1 msk engifer, fínrifið
 1 hvítlauksrif, pressað
 salt og pipar

Leiðbeiningar

1

Saltið andabringurnar, leggið þær á grillið með fituhliðina niður og snöggbrúnið þær við háan hita í um 2 mínútur á hlið. Setjið þær síðan í álform eða eldfast mót sem þolir að fara á grillið. Setjið andabringurnar á efri hillu á grillinu, lokið því og steikið bringurnar í 10-12 mínútur. Takið af grillinu og leyfið að standa í nokkrar mínútur. Skerið þær þvínæst í litla munnbita.

2

Blandið káli, mangó, vorlauk, cashew hnetur, kóríander og andabringum saman í skál.

3

Gerið salatsósuna með því að blanda saman ólífuolíu, sesamolíu, ediki, hoisin sósu og sykri. Hrærið vel saman og blandið því næst engifer og hvítlauk saman við. Kryddið eftir smekk. Hellið dressingunni út í salatið og blandið vel saman.

Uppskrift frá Berglindi á GulurRauðurGrænn&Salt.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir