fbpx

Penne pasta með kjúklingi og bræddum mozzarellaosti

Himneskur pastaréttur sem allir elska.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 500 g penne pasta
 2 msk ólífuolía
 2-3 kjúklingabringur, t.d. lífrænar kjúklingabringur frá Rose poultry
 salt og pipar
 1 stór laukur, skorinn smátt
 2-3 hvítlauksrif, skorin smátt
 1 dós pastasósa frá Hunt‘s
 ½ tsk rauðar chilíflögur (ég notaði chilí explosion)
 120 ml vatn
 fersk steinselja smátt skorin
 2 kúlur ferskur mozzarella, skorinn í bita
 vænt stykki parmesan

Leiðbeiningar

1

Eldið pastað samkvæmt leiðbeiningum þar til það er „al dente“.

2

Hitið olíu á pönnu, setjið kjúklinginn á pönnuna, saltið hann og piprið og steikið þar til hann hefur brúnast á öllum hliðum. Takið hann þá af pönnunni, setjið á disk og geymið.

3

Steikið lauk og hvítlauk við meðal hita í 2-3 mínútur og hrærið stöðugt í honum svo hann brenni ekki við. Þegar hann er orðinn gylltur, bætið þá pastasósunni, piparflögunum og vatni út á pönnuna.

4

Blandið vel saman og bætið síðan kjúklingnum og steinselju og blandið saman við. Leyfið að malla í um 8 mínútur, smakkið sósuna til með salti, pipar og chilíflögum.

5

Þegar pastasósan er orðin vel heit bætið þá mozzarellaostinum út í sósuna og hrærið honum varlega saman við og leyfið honum svo að malla í sósunni í 2-3 mínútur eða þar til hann er farinn að mýkjast.

6

Setjið pasta á disk og hellið nokkra dropa af ólífuolíu yfir það og rífið vel af parmesan yfir pastað. Hellið því næst sósunni yfir pastað, stráið meira af parmesan yfir sósuna og stráið síðan ferskri steinselju (eða basilíku) yfir allt.

Uppskrift frá Berglindi á GulurRauðurGrænn&Salt.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir