fbpx

Litlar ostakökur í glasi með hafrasúkkulaðikexi, jarðaberjum og vanillu

Ég elska svona litla deserta í glösum, alltaf svo góðir, einfalt að gera og fallegt að bera fram. Þessi desert er vegan og glútenlaus, þvílík bragðsprengja og hentar flestum. Ég gerði hér kexmylsnu úr Nairn’s glútenlausa súkkulaðikexinu og útbjó vanillu „ostaköku“ blöndu úr dásamlegu Oatly vörunum. Toppað með ferskum jarðarberjum og útkoman er ferskur og bragðgóður desert. Það er hægt að útbúa desertinn með góðum fyrirvara og geyma í kæli. Þá er skreytt með jarðarberjum bara rétt áður en eftirrétturinn er borinn fram.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 2 stk litlir pakkar Nairn's hafrasúkkulaðikex (4pk í einum kassa)
 3 msk vegan smjör, mjög mjúkt eða nánast brætt
 1 tsk hrásykur
 2 stk dósir Oatly hafrarjómaostur
 100 stk Oatly Turkisk hafragúrt
 100 ml Oatly VISP hafrarjómi
 3 msk hlynsíróp frá Rapunzel
 1 tsk sítrónusafi
 2 tsk vanilludropar
 0,25 tsk vanillukorn (má sleppa en gerir dásamlegt bragð)
 nokkur saltkorn
 fersk jarðaber eftir smekk

Leiðbeiningar

1

Byrjið á því að mylja kexið í matvinnsluvél, blandið vegan smjöri og hrásykri saman við

2

Þeytið saman í skál hafrarjómaostinn og tyrknesku jógúrtina ásamt sítrónusafa, hlynsírópi, vanillu og salti.

3

Þeytið rjómann í annarri skál þar til hann er stífþeyttur. Blandið rjómanum saman við ostakökublönduna með sleikju.

4

Skiptið helmingnum af kexmylsnunni í 4 lítil glös. Setjið þá ostakökublönduna ofan á að miðju glasi. Setjið restina af mylsnunni yfir og toppið með restinni af ostakökublöndunni. Geymið í kæli þar til þið ætlið að bera fram desertinn, skreytið með smá kexmylsnu og ferskum jarðarberjum.

Uppskrift eftir Völlu á GRGS.is

Matreiðsla, , MatargerðMerking, ,

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Rækjusalat með risarækjumDásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það…