fbpx

Humarspaghetti í sítrónusósu

Hér er á ferðinni léttur og undursamlegur pastaréttur sem var skemmtileg tilbreyting frá því sem ég er vön að gera! Kalt hvítvín frá Muga passar síðan einstaklega vel með þessari máltíð!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 650 g skelflettur humar frá Sælkerafisk
 100 g smjör
 500 g De Cecco spaghetti
 6 stk hvítlauksrif
 2 stk sítrónur (börkurinn)
 50 ml sítrónusafi (um 1 sítróna)
 200 ml pastavatn
 Söxuð steinselja
 Parmesan ostur
 Hvítlauks brauðrasp (sjá uppskrift að neðan)
 Filippo Berio ólífuolía
 Salt, pipar og hvítlauksduft
Hvítlauks brauðrasp
 3 heilhveiti brauðsneiðar (eða grófar)
 2 stk hvítlauksrif
 2-3 msk Filippo Berio ólífuolía
 Smá salt og pipar

Leiðbeiningar

1

Útbúið hvítlauks brauðrasp og leggið til hliðar.

2

Sjóðið spaghetti í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

3

Skolið og þerrið humarinn, steikið síðan upp úr um 50 g af smjöri, rífið um 3 hvítlauksrif yfir og kryddið eftir smekk. Steikið hann þó aðeins í stuttan tíma því hann er fljótur að eldast (1-2 mínútur). Takið af pönnunni og geymið á disk (með smjörinu/safanum) á meðan sítrónusósan er undirbúin.

4

Bætið restinni af smjörinu á pönnuna og steikið um 3 rifin hvítlauksrif stutta stund við meðalhita.

5

Bætið sítrónuberkinum, sítrónusafanum og smá af pastasoðinu saman við og leyfið aðeins að malla saman.

6

Bætið þá restinni af pastavatninu á pönnuna ásamt pasta og humri og blandið öllu vel saman.

7

Njótið með góðri ólífuolíu, steinselju, parmesan og stökkum hvítlauks brauðraspi.

Hvítlauks brauðrasp
8

Ristið brauðsneiðarnar þar til þær verða vel stökkar. Rífið þær næst gróft niður og setjið í blandara, blandið þar til gróf mylsna hefur myndast.

9

Steikið þá á vel heitri pönnu upp úr ólífuolíu og hvítlauk, kryddið eftir smekk. Steikið þar til stökkt og geymið þá til hliðar þar til bera á réttinn fram.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir