fbpx

Stökkt taco með bræddum osti, baunabuffi og tahini hvítlaukssósu

Það vita margir að það er leitun að góðum vegan osti og hvað þá einhverjum sem bráðnar vel. Vegan Applewood osturinn er svo brilliant og góður. Mjúkur með dálítið reyktu bragði og passar sérstaklega vel með mexíkóskum mat. Það er ótrúlega fljótlegt og einfalt að útbúa þetta taco en hér ristaði ég litlar tortillu kökur á pönnu og setti ostinn á heita kökuna. Síðan sneri ég henni aðeins við svo osturinn færi beint á brenn heita pönnuna og við það gerast einhverjir töfrar! Fyllt með fersku rauðkáli, gulrótastrimlum, fersku salati, tómötum og baunabuffi. Toppað með söxuðu fersku jalapeno og hvítlaukssósu. Algjörlega stórkostleg samsetning sem þið verðið að prófa!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Taco
 2 tsk ólífuolía
 8 stk litlar taco kökur
 8 stk sneiðar Applewood vegan ostur
 4 stk baunabuff að eigin vali, t.d. frá Perfect Season
 Ferskt rauðkál, smátt skorið
 Gulrætur, fínt skornar
 Jöklasalat, fínt skorið
 Tómatar, saxaðir smátt
 Ferskt jalapeno, smátt saxað
 Salsa sósa
 Jógúrtsósa
Tahini hvítlaukssósa
 1 stk dós Oatly sýrður rjómi
 1 msk tahini, ég notaði frá Rapunzel
 2 stk hvítlauksgeirar, kramdir
 1 tsk þurrkuð kóríanderlauf
 1 tsk þurrkuð kóríanderlauf
 1 tsk límónusafi
 Sjávarsalt eftir smekk

Leiðbeiningar

Tahini hvítlaukssósa
1

Setjið öll hráefnin í skál, hrærið saman og kælið á meðan taco-ið er gert.

Taco
2

Skerið grænmetið og setjið til hliðar. Hitið eða steikið baunabuffin samkvæmt leiðbeiningum, skerið þau svo í litla bita.

3

Setjið ólífuolíu á pönnu og steikið taco kökurnar, setjið það magn á pönnuna sem kemst fyrir. Snúið þeim við þegar þær eru farnar að brúnast og setjið eina sneið af osti á hverja köku. Þegar þær eru farnar að brúnast vel á hliðinni sem snýr nú niður snúið þá aftur við þannig að ostahliðin snýr beint niður á pönnuna. Steikið ostinn í nokkrar sekúndur og takið þá kökurnar af pönnunni og fyllið.

4

Setjið fyrst salsasósu á kökuna, því næst grænmeti, baunabuff, toppið með hvítlaukssósunni og söxuðu jalapeno.

MatreiðslaMatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir