fbpx

Smákökur með Cadbury mini eggjum

Ef að þið elskið litlu súkkulaðieggin frá Cadburys þá munið þið elska þessar einföldu smákökur! Kökurnar renna ljúflega niður með kaldri mjólk eða rjúkandi heitu kaffi. Tilvalið til að baka um helgina með krökkunum eða bara fyrir ykkur til að njóta.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 200 g smjör við stofuhita
 1 dl púðursykur
 0,3 dl sykur
 2 egg
 1 tsk vanilludropar
 4,7 dl hveiti
 1 tsk matarsódi
 ½ tsk salt
 3 pokar Cadbury mini egg

Leiðbeiningar

1

Byrjið á því að hræra saman smjör, púðursykur og sykur í hrærivél. Hrærið í nokkrar mínútur eða þar til hráefnin hafa blandast vel saman.

2

Bætið eggjum og vanilludropum saman við og hrærið þar til blandan verður rjómakennd.

3

Hrærið hveiti, matarsóda og salti saman við.

4

Saxið 3 poka af Cadbury mini eggjum og takið smá til hliðar til að skreyta (má sleppa).

5

Blandið mini eggjunum saman við deigið.

6

Þekjið bökunarplötu með bökunarpappír og útbúið kúlur úr deiginu með höndunum (1 kúla = 1 ½ msk).

7

Dreifið kúlunum á bökunarpappírinn og þrýstið með skeið ofan á þær (passið að hafa smá bil á milli deigsins) Skreytið með mini eggjunum.

8

Bakið við 180°C með blæstri í 8-10 mínutur og njótið.

Uppskrift frá Hildi Rut.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…