fbpx

Léttur kjúklingaréttur í kryddaðri gulrótarsósu

Gulrótarsósan er bragðmikil og þétt í sér og hjúpar kjúklingin svo fallega og gefur réttinum afar ljúffenga áferð.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 2 msk spelt eða hveiti
 1 tsk fínt borðsalt
 4 stk kjúklingabringur Rose Poultry
 2 msk ólífuolía
 300 gr gulrætur
 1 tsk paprikuduft
 1 tsk kóríander
 1/2 tsk engiferkrydd
 1 msk Oscar kjúklingadufts kraftur
 2,5 dl soðið vatn + 2 msk seinna
 1 msk sítrónusafi
 2 msk Philadelphia Light
 söxuð fersk baslika til að dreifa yfir réttinn

Leiðbeiningar

1

Veltið bringunum upp úr hveiti og hitið olíu á pönnu

2

Setjið bringurnar út á heita olíuna og saltið með 1 tsk fínu borðsalti. Steikið í 2 mín á hvorri hlið og takið tímann
Skrælið gulrætur og skerið í þunnar sneiðar og bætið út á pönnuna ásamt kryddunum þremur og hrærið

3

Hafið heitt soðið vatn tilbúið við höndina og setjið 1 msk af Oscar kjúklingakraft í duftformi út á ásamt 2,5 dl af soðnu vatni og sítrónusafa

4

Látið suðuna koma upp og lækkið niður í lægsta hita og leyfið að malla saman á pönnuni í eins ug um 10 mín undir loki

5

Færið þá bringurnar yfir á disk og setjið gulrætur ásamt safanum á pönnuni í blandara eða matvinnsluvél ásamt 2 msk af vatni og 2 msk af Philadelphia light og maukið vel

6

Hellið svo gulrótarsósunni aftur út á pönnuna ásamt bringunum og leyfið að malla í eins og 2-4 mínútur saman

7

Raðið bringunum á diska og hellið sósunni vel yfir og stráið ferskri basiliku yfir

8

Berið fram með cous cous og einnig er gott að hafa með salat eða soðið spergilkál

Uppskrift eftir Maríu á Paz.is

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir