fbpx

Einfalt lasagna með spínati, linsum, rauðu pestói og sólþurrkuðum tómötum

Lasagna er einmitt svona matur sem gott er að útbúa á kaldasta tíma ársins. Frábært að eiga tilbúið lasagna í frysti og hita upp eftir þörfum og það er hægt að nota hvað sem er í fyllinguna, fer bara eftir ísskápa status hverju sinni. Grunnurinn er yfirleitt svipaður en svo skipti ég út grænmeti og kryddum eftir behag. Mér finnst algjörlega ómissandi að setja pestó frá Rapunzel í lasagna og yfirleitt set ég bæði grænt og rautt. Ég laumaði hérna nokkrum sólþurrkuðum tómötum og það var alveg geggjað. Ég gerði einnig vegan bechamel sósu og notaði hana ofan á lasagnað, börnin mín vilja helst ekki bakaðan ost svo ég sleppti honum bara. Það væri auðvitað mjög snjallt að setja einhvern góðan vegan rifinn ost ofan á, eða toppa með næringargeri t.d.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Lasagna
 15 sentimetra bútur af blaðlauk
 2 stk stórir hvítlauksgeirar
 6 stk meðalstórir sveppir
 ¾ stk af stórum spínatpoka
 1 bolli rauðar linsur, soðnar með 1 sveppateningi
 1 stk dós niðursoðnir tómatar frá Rapunzel
 3 msk tómatpúrra frá Rapunzel
 2 msk rautt pestó frá Rapunzel
 8 stk sólþurrkaðir tómatar frá Rapunzel
 2 tsk oregano
 1 tsk grænmetiskraftur frá Rapunzel
 salt og pipar
 Lasagnaplötur frá Rapunzel, magn eftir stærð forms
Vegan Bechamel sósa
 60 g vegan smjör
 60 g hveiti
 lífræn Oatly mjólk
 Sjávarsalt og grænmetiskraftur frá Rapunzel

Leiðbeiningar

Lasagna
1

Saxið grænmetið smátt. Steikið á pönnu upp úr 1 msk af ólífuolíu. Sjóðið linsubaunir samkvæmt leiðbeiningum með sveppakrafti. Það tekur svona 12-15 mín.

2

Setjið linsubaunirnar saman við grænmetið, bætið niðursoðnum tómötum saman við ásamt, pestó, sólþurrkuðum tómötum og kryddum.

3

Látið malla við vægan hita í örfáar mínútur og takið af hellunni. Útbúið á meðan bechamel sósuna.

4

Takið fram meðalstór ofnfast mót. Byrjið á því að smyrja lasagnablöndunni í botninn á fatinu. Dreifið bechamel sósunni yfir og raðið lasagnaplötum yfir. Endurtakið þar til lasagna blandan er komin efst. Toppið með bechamel sósunni og kryddið yfir ef vill. Einnig er hægt að nota vegan rifinn ost.

5

Bakið við 200°C í 35-40 mín, kælið aðeins áður en þið skerið í það og berið fram.

Vegan Bechamel sósa
6

Bræðið smjörið í potti við meðalhita. Setjið hveitið saman við og pískið saman. Setjið smávegis af mjólk saman við, 2-3 msk í einu og pískið þar til blandan er samfelld áður en meiri mjólk er bætt saman við. Þynnið þannig sósuna smám saman þar til hún verður eins og vöffludeig ca. Kryddið með salti og grænmetiskrafti eftir smekk, ég setti líklega um 1/2 tsk af krafti. Magnið af mjólk fer svolítið eftir því hvað þið viljið hafa sósuna þykka.

Uppskrift eftir Völlu á GRGS.is

Matreiðsla, MatargerðMerking,

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir