BBQ kjötbollur

Hér erum við með ljúffengar kjötbollur sem er tilvalið að bjóða upp á í veislum eða sem kvöldmat með t.d salati og hrísgrjónum. 

Magn1 skammturRating0.0

Uppskrift

Hráefni

 600 g nautahakk
 1/2 laukur
 20 g panko brauðrasp
 30 g Parmareggio parmesan ostur
 1 stk egg
 3 stk hvítlauksgeirar
 2 msk söxuð steinselja
 1 tsk hvítlauksduft
 salt + pipar
 6 msk Heinz bbq sósa að eigin vali
 Graslaukur (til skrauts)
 PAM matarolíusprey

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 175°C.

2

Saxið laukinn smátt, rífið parmesan ostinn fínt niður, rífið/pressið hvítlauksrifin og blandið öllu saman í skál  nema bbq sósu og graslauk.

3

Kryddið vel með salti og pipar og ef þið eigið önnur uppáhalds krydd má bæta þeim við hér.

4

Rúllið síðan í litlar bollur (um matskeið fyrir hverja) og raðið á bökunarpappír í ofnskúffu, spreyið aðeins með PAM.

5

Bakið í 10 mínútur, snúið bollunum og bakið aftur í 10 mínútur.

6

Takið þær þá úr ofninum, færið yfir í eldfast mót eða nýjan bökunarpappír (til að losna við umfram fitu), veltið upp úr bbq sósunni og bakið aftur í um 5 mínútur.

7

Berið fram með því að strá söxuðum graslauk yfir og hægt er að borða bollurnar bæði heitar og kaldar og eru þær því tilvalinn réttur til að útbúa með fyrirvara og hafa á smáréttahlaðborði.

8

Uppskriftin gerir c.a 30 bollur 

SharePostSave

Hráefni

 600 g nautahakk
 1/2 laukur
 20 g panko brauðrasp
 30 g Parmareggio parmesan ostur
 1 stk egg
 3 stk hvítlauksgeirar
 2 msk söxuð steinselja
 1 tsk hvítlauksduft
 salt + pipar
 6 msk Heinz bbq sósa að eigin vali
 Graslaukur (til skrauts)
 PAM matarolíusprey
BBQ kjötbollur

Aðrar spennandi uppskriftir