Múslí útbúið að pönnu á nokkrum mínútum. Fullkomið þegar maður vill græja fullkomna smoothie skál með engum fyrirvara. Í þessa uppskrift nota ég lífrænar vörur frá Rapunzel.

Uppskrift
Hráefni
1 dl lífrænt kókos (kókosmjöl) frá Rapunzel
1 dl lífrænir hafrar frá Rapunzel
1 dl lífrænar möndlur frá Rapunzel
5 stk þurrkaðar lífrænar döðlur frá Rapunzel
0,50 tsk kanill
0,25 tsk lífrænt vanilluduft frá Rapunzel
1 msk lífræn kaldpressuð kókosolía frá Rapunzel
Leiðbeiningar
1
Byrjið á að saxa möndlurnar og döðlurnar smátt. Setjið hafra, kókos, döðlur og möndlur á þurra pönnu.
2
Setjið helluna á meðalháan hita og hrærið nokkuð stöðugt í blöndunni allan tíman og fylgist vel með kókosnum. Við erum í raun bara að bíða eftir að kókosinn ristist léttilega.
3
Þegar við sjáum að kókosinn er farinn að ristast bætum við kanil og vanillu og kókosolíu útá og hrært vel saman.
4
Hafrarnir draga í sig olíuna og þegar þeir eru orðnir þurrir er múslíið tilbúið.
Uppskrift eftir Hildi Ómars
MatreiðslaLífrænt, Morgunmatur, VeganTegundÍslenskt
Hráefni
1 dl lífrænt kókos (kókosmjöl) frá Rapunzel
1 dl lífrænir hafrar frá Rapunzel
1 dl lífrænar möndlur frá Rapunzel
5 stk þurrkaðar lífrænar döðlur frá Rapunzel
0,50 tsk kanill
0,25 tsk lífrænt vanilluduft frá Rapunzel
1 msk lífræn kaldpressuð kókosolía frá Rapunzel