fbpx

Súpersalat

Einfalt og gott salat er eitthvað sem maður ætti að útbúa í hverri viku. Smjörsteiktar maísbaunir voru smá tilraun hjá mér og namm hvað það var skemmtileg tilbreyting!

Magn4 skammtarRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 900 g 1 poki Rose Poultry kjúklingabringur
 Caj P grillolía
 1 hausa rósasalat1-2 eftir stærð
 1 box kirsuberjatómatar
 150 g gular baunir (í dós)
 0,50 stk rauðlaukur
 Nachos flögur (1/3 poki)
 Cheddar ostur (rifinn eftir smekk)
 Kóríander
 Ceasar salat dressing (keypt tilbúin)
 1 msk smjör til steikingar
 salt og pipar

Leiðbeiningar

1

Marinerið kjúklingabringur í Caj P olíu í að minnsta kosti 2 klukkustundir (eða yfir nótt).

2

Grillið við meðalháan hita í 6-7 mínútur á hvorri hlið, penslið síðan meiri grillolíu á í lokin og leyfið bringunum að standa á meðan þið útbúið salatið.

3

Steikið gular baunir upp úr smjörinu og kryddið með salti og pipar.

4

Skerið rósasalat niður og setjið í skál.

5

Skerið næst tómata, rauðlauk og kóríander niður og blandið saman við salatið ásamt gulu baununum.

6

Skerið þá kjúklingabringurnar og leggið yfir, stráið vel af cheddar osti og nachos flögum yfir allt og njótið með ceasar salat dressingu.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir