fbpx

Sour Patch Kids regnbogakaka

Já krakkar mínir, hér kemur sko ein litrík og ljúffeng!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Botnar
 430 g hveiti
 1 msk. lyftiduft
 1 tsk. salt
 280 g smjör við stofuhita
 440 g sykur
 7 eggjahvítur við stofuhita
 1 msk. vanilludropar
 300 ml „Buttermilk“ (kreistið 1 matskeið af sítrónusafa í nýmjólk)
 150 g sýrður rjómi við stofuhita
Krem og skreyting
 300 g smjör við stofuhita
 950 g flórsykur
 220 ml rjómi
 ¼ tsk. salt
 3 tsk. vanilludropar
 6-7 pokar Sour Patch Kids hlaup
 Marglitað kökuskraut

Leiðbeiningar

Botnar
1

Hitið ofninn í 170°C og takið til 5 x 15 cm kökuform. Klippið smjörpappír í botninn og spreyjið vel með matarolíuspreyji að innan.

2

Blandi hveiti, lyftidufti og salti saman í skál, geymið.

3

Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.

4

Bætið þá eggjahvítunum saman við, í nokkrum hlutum og skafið niður á milli.

5

Næst fara vanilludroparnir saman við og síðan hveitiblandan og „buttermilk“ til skiptis. Hrærið á lágum hraða og skafið síðan niður og blandið í nokkrar sekúndur aftur.

6

Blandið að lokum sýrða rjómanum varlega saman við.

7

Skiptið deiginu niður í 5 skálar og litið með gulu, appelsínugulu, rauðu, grænu og bláu.

8

Setjið í formin og bakið í um 25-30 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.

9

Kælið áður en þið útbúið kremið og setjið kökuna saman.

Krem og skreyting
10

Þeytið smjörið þar til létt.

11

Bætið þá flórsykri og rjóma saman við til skiptis, skafið niður á milli og þeytið vel.

12

Setjið að lokum salt og vanilludropa saman við og þeytið aðeins til viðbótar.

13

Setjið um 5 matskeiðar af kremi í senn í skál og litið í sama lit og botnarnir.

14

Ég byrjaði á bláa botninum og setti bláa kremið ofan á, gott er að kremið sé um 1 cm að þykkt.

15

Síðan má setja græna ofan á, gera grænt krem og þannig koll af kolli.

16

Að lokum fer guli botninn ofan á og þá má lita alla restina af kreminu gult og grunnhjúpa kökuna með þunnu lagi af kremi.

17

Eftir um 30 mínútur má síðan setja næsta lag af kremi á kökuna og gott að hafa það um ½-1 cm á þykkt. Sléttið hliðarnar og toppinn eftir fremsta megni og raðið síðan Sour Patch Kids hlaupi á hliðarnar eins og myndin sýnir. Alltaf tveir og tveir eins, hlið við hlið og vinnið þetta lóðrétt, alltaf ein lína alveg upp.

18

Síðan rúlla litirnir alltaf niður þannig að „ombre“ mynstur komi á hlaupkarlana.

19

Þegar búið er að þekja kökuna með Sour Patch Kids má setja restina af kreminu í sprautupoka með stórum stjörnustút (ég notaði 2 D frá Wilton).

20

Sprautið 8 jafna toppa ofan á kökuna við kantana, stráið kökuskrauti ofan á þá og í miðjuna og setjið Sour Patch Kids hlaupkarla á milli toppanna. Einnig er hægt að raða hlaupkörlunum fyrst og sprauta síðan toppana og skreyta með kökuskrautinu.

Þetta er í rauninni bara vanillu kaka með vanillu kremi, lituð í öllum regnbogans litum og skreytt með þessu krúttlega og litríka hlaupi. Uppskrift frá Berglindi á Gotterí.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…