fbpx

Múmíukökur með OREO Milka

Einstaklega bragðgóðar og krúttlegar hrekkjavöku smákökur. Þær innihalda Milka Oreo súkkulaði ásamt hvítu súkkulaði sem gerir þær svo ljúffengar. Tilvalið að útbúa með börnunum um helgina. Svo er einnig sniðugt að skella í þær fyrir jólin og þá er hægt að sleppa augunum og jafnvel gera þær minni.

Magn16 skammtarRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 200 g hveiti
 1 tsk sjávarsalt
 ¾ tsk matarsódi
 1 tsk lyftiduft
 3 msk Cadbury kakóduft
 170 g smjör
 200 g púðursykur
 50 g sykur
 1 egg
 2 eggjarauður
 1 tsk vanilludropar
 200 g Milka með Oreo
 200 g hvítt súkkulaði
 Nammiaugu

Leiðbeiningar

1

Bræðið smjörið og hrærið saman við sykurinn.

2

Bætið eggjunum og vanilludropunum saman við og hrærið.

3

Blandið hveiti, salti, matarsóda, lyftidufti og kakói saman við .

4

Blandið varlega söxuðu Oreo Milka súkkulaði saman við deigið.

5

Þekjið bökunarplötu með bökunarpappír og myndið kúlur úr deiginu. Ein kúla er ca. ein matskeið. Ég mæli með að kæla deigið en ef að þið eruð að drífa ykkur þá er það í lagi.

6

Bakið í ofni við 190°C í 10-12 mínútur. Passið að snúa bökunarplötunni við ef að ykkur finnst kökurnar ekki bakast jafnt.

7

Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði.

8

Dreifið hvíta súkkulaðinu yfir kökurnar með sprautupoka og setjið augun ofan á súkkulaðið. Kælið þar til súkkulaðið harðnar og njótið.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…