fbpx

Kókosbollur

Klassískar vatndeigsbollur með kókosbragði. Það kemur góður kókoskeimur í rjómann frá kókossmyrjunni og síðan gott að fá litla og seiga Yankie bita með í hverjum bita!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Vatnsdeigsbollur
 150 g hveiti
 1 tsk lyftiduft
 ¼ tsk salt
 140 smjör
 270 ml vatn
 3 stk egg (um 130g)
Fylling
 500 ml þeyttur rjómi
 ½ stk So Vegan So Fine (krukka)
 150 g Yankie með kókos (3 stk)
Hvítsúkkulaði ganaché + skraut
 100 g hvítt súkkulaði
 60 ml rjómi
 Brómber, brúðarslör og kókosflögur til skrauts

Leiðbeiningar

Vatnsdeigsbollur
1

Hitið ofninn í 180°C.

2

Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og geymið.

3

Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit. Leyfið að bubbla aðeins og takið síðan af hellunni.

4

Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleikju þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.

5

Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni á meðan þið pískið eggin.

6

Setjið eggin næst saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Athugið að nota aðeins 130 g af eggjunum. Egg eru misstór og því gott að vigta þetta til þess að deigið verði ekki of þunnt.

7

8

Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá falla þær.

Fylling
9

Saxið Yankie smátt og geymið.

10

Vefjið kókossmyrjunni saman við þeyttan rjómann og að lokum söxuðu Yankie.

11

Skiptið á milli bollanna og toppið með hvítu súkkulaði ganaché.

Hvítsúkkulaði ganaché + skraut
12

Saxið súkkulaðið smátt og hitið rjómann að suðu.

13

Hellið rjómanum yfir saxað súkkulaðið og leyfið að standa í um 2 mínútur.

14

Pískið síðan saman þar til kekkjalaust og leyfið blöndunni aðeins að kólna niður/þykkna en þó ekki þannig að hún nái ekki að leka aðeins niður hliðarnar á bollunni.

15

Smyrjið ganaché yfir hverja bollu og toppið með brómberi, kókosflögum og brúðarslöri.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…