fbpx

Humar pizza með beikoni og Heinz Mayomix

Gómsæt pizza með humar og beikoni, toppuð með Heinz Mayomix.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 400 g Pizzadeig
 250 g Humar, skelfléttur
 3 stk hvítlauksrif
 70 g beikon
 60 ml Heinz Mayomix
 21 stk rauðlaukur
 4 g steinselja
 1 stk vorlaukur
 40 ml Filippo Berio ólífuolía

Leiðbeiningar

1

Takið pizzadeigið úr kæli 2 klst fyrir eldun.

2

Hitið ofn í 200°C með blæstri. Raðið beikoni á ofnplötu og bakið í miðjum ofni í 12-15 mín eða þar til beikonið er fulleldað. Fylgist vel með svo beikonið brenni ekki við. Skerið beikon svo í bita og stillið ofninn á 230°C á pizzastillingu eða blæstri.

3

Þerrið humar og steikið á heitri pönnu þar til fulleldaður. Bætið við 1,5 pressuðu hvítlauksrifi og steikið í stutta stund. Saltið smá og setjið til hliðar.

4

Pressið 1,5 hvítlauksrif saman við 40 ml af góðri ólífuolíu.

5

Setjið bökunarplötu inn í ofn svo hún hitni vel á meðan unnið er í botninum. Ef pizzasteinn er til á heimilinu er kjörið að nota hann í stað bökunarplötunnar. Hafið bökunarpappír kláran til að vinna deigið á.

6

Setjið hveiti á hendurnar og borðið og notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 15" hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski. Þannig er gasinu í deiginu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist betur.

7

Smyrjið pizzabotninn með hvítlauksolíu og saltið smá. Dreifið mozzarellaosti yfir pizzuna. Raðið humar, rauðlauk og beikoni á pizzuna.

8

Takið heita ofnplötuna úr ofninum (farið varlega) og dragið pizzzuna á ofnpappírnum á heita plötuna. Bakið í neðstu grind í ofni í 12-15 mín eða þar til pizzan er orðin fallega gyllt og ljúffeng.

9

Sneiðið vorlauk og steinselju. Toppið pizzuna með Heinz Mayomix, vorlauk, steinselju og svolitlu salti. Athugið að það má salta pizzuna hæfilega þar sem það er engin pizzasósa.

Uppskrift frá Matur og myndir.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Pizza fyrir tvoHér er á ferðinni ekta pizza fyrir rómantískan kvöldverð! Auðvitað má gera þessa pizzu við hvaða tilefni sem er en…
MYNDBAND
BBQ tortilla pizzaEf þig langar að útbúa eitthvað ofurfljótlegt og gómsætt, þá er það þetta hér! Sweet bbq sósan frá Heinz smellpassar…