fbpx

Heimagert granóla með döðlum og kanil

Úr smiðju Hildar Ómars sem hefur verið grænmetisæta frá fæðingu og er nú vegan: "Hér kemur mitt uppáhalds granóla".

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Það þurra:
 2 bollar lífrænir grófir hafrar frá Rapunzel
 1 bolli lífrænt kókosmjöl frá Rapunzel
 ¾ bolli lífrænar möndlur frá Rapunzel
 ¾ bolli pekanhnetur
 10 stk mjúkar steinhreinsaðar döðlur
Það blauta:
 ½ bolli hlynsíróp t.d frá Rapunzel
 ½ bolli kókosolía t.d frá Rapunzel
 2 msk hnetusmjör
 1 msk vanilludropar
 1 msk kanill
 1 tsk kardimomma
 hnífsoddur salt

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 150°C.

2

Byrjið á að saxa möndlurnar og hneturnar gróft. Fjarlægið steininn úr döðlunum og klippið þær í minni bita. Mér finnst best að nota mjúku döðlurnar í kössunum. Setjið svo allt þurra saman í stóra skál.

3

Komið öllu því blauta, ásamt kryddum, saman í pott og hitið á vægum hita. Hrærið vel í allan tíman þar til allt hefur blandast vel, viljum við ná að leysa upp hnetusmjörið án þess að það komi upp suða. Hellið því blauta svo yfir það þurra og blandið vel.

4

Dreifið blöndunni á ofnplötu og bakið í u.þ.b. 25 mínútur. Það er gott að hreyfa við því eftir fyrsta korterið. Leyfið granólanu að kólna á plötunni áður en sett í loftþétta krukku.

Uppskrift eftir Hildi Ómars

Matreiðsla, Matargerð

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Rækjusalat með risarækjumDásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það…