fbpx

Grillaðar samlokur

Hér kemur ein djúsí, mjög einföld og ótrúlega góð samloka. Hún inniheldur uppáhalds hamborgarasósuna mína frá Heinz, skinku, salat, tómata, jalapeno ásamt cheddar-og havarti ost. Nammii! Ég kaupi nánast alltaf þessa sósu þegar við grillum hamborgara en hún er alveg jafn góð á svona djúsí samlokur. Mæli með að bera fram með óáfengum Corona bjór, hann er virkilega góður.

Magn2 skammtarRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 1 súrdeigs baguette
 smjör
 2 sneiðar kjúklingaskinka
 4 sneiðar silkiskorin skinka
 4 sneiðar havarti ostur
 2 sneiðar mjúkur cheddar ostur í sneiðum
 2 msk jalapeno úr krukku, smátt skorinn
  Salat eftir smekk
 1 tómatur
 Heinz Burger Sauce

Leiðbeiningar

1

Byrjið á því að skera baquette brauðið í tvennt og svo í þversum þannig að úr verða tvær samlokur.

2

Smyrjið allar brauðsneiðarnar með smjöri og dreifið skinku, havarti – og cheddar ostasneiðunum ofan á.

3

Leggið brauðið ofan á ofnplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 180°C. Mæli með að stilla á grill á ofninum.

4

Því næst dreifið jalapeno eftir smekk, salati, tómötum og sósunni. Lokið samlokunum og njótið.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Big Mac HamborgariJá krakkar mínir, núna getið þið útbúið ykkar eigin „Big Mac“ heima í eldhúsinu! Það skiptir máli að fletja hakkið…