fbpx

Daim bollur

Daim bollur með jarðarberjarjóma.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Vatnsdeigsbollur
 180 g smjör
 360 ml vatn
 200 g hveiti
 1 tsk. lyftiduft
 ¼ tsk. salt
 3-4 egg (160 g)
Fylling
 600 ml þeyttur rjómi
 250 g maukuð jarðarber
 120 g saxað Daim
Bleik súkkulaðibráð og skraut
 100 g bleikt hjúpsúkkulaði (Clasen fæst í Hagkaup)
 60 ml rjómi
 Daim-kurl

Leiðbeiningar

Vatnsdeigsbollur
1

Hitið ofninn í 180°C.

2

Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.

3

Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.

4

Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.

5

Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.

6

Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.

7

Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið).

8

Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá geta þær fallið.

Fylling
9

Blandið rjóma og jarðarberjum saman og vefjið síðan Daim varlega saman við með sleif.

10

Fyllið bollurnar og útbúið súkkulaðibráðina.

Bleik súkkulaðibráð og skraut
11

Saxið hjúpsúkkulaðið smátt niður.

12

Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið, pískið saman þar til slétt súkkulaðibráð hefur myndast.

13

Leyfið henni aðeins að þykkna og smyrjið henni síðan yfir bollurnar.

14

Skreytið með Daimkurli og ferskum blómum.

Uppskrift frá Berglindi á Gotterí.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…