fbpx

Bökuð Brownie Turtle ostakaka

Afar einföld brownie ostakaka sem er best köld.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Brownie botn
 115 gr smjör
 115 gr suðusúkkulaði
 150 gr sykur
 50 gr púðursykur
 2 egg
 1 tsk vanilludropar
 1/2 tsk salt
 45 gr hveiti
 10 gr bökunarkakó frá Cadbury
Ostakakan
 450 gr Philadelphia Original rjómaostur
 2 egg
 115 gr sykur
 1 tsk vanilludropar
Súkkulaðibráð og ofan á
 60 gr suðusúkkulaði
 60 gr rjómi
 Lófafylli af pekanhnetum
 50 gr smátt skorið suðusúkkulaði eða súkkulaðidropar

Leiðbeiningar

Brownie botn
1

Byrjið á að hita ofn á 180 C°blástur

2

Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við miðlungsháan hita og hrærið stöðugt í á meðan svo brenni ekki

3

Setjið svo í hrærivélarskál og kælið í 10 mín

4

Þegar hefur kólnað í þessar 10 mín hrærið þá sykrinum öllum út í súkkulaðið með písk

5

Bætið nú 1 eggi út í í einu og hrærið með písk áfram bara létt saman

6

Sigtið næst hveiti og kakó út í blönduna og setið salt og vanilludropa saman við

7

Hrærið eins lítið saman og hægt er í handþeytara eða með písk svo kakan verði ekki seig en bara rétt þannig að hráefnin blandist saman

8

Smyrjið kringótt bökunarmót sem er 23-24 cm í þvermál og hellið deiginu ofan í

Ostakakan
9

Setjið ostinn í skál og hrærið hann upp með handþeytara

10

Bætið svo sykri, eggjum og vanilludropum saman við og þeytið þar til allt er blandað saman og orðið frauðkennt og ljóst

11

Hellið svo blöndunni yfir brownie blönduna og setjið í ofninn í 30 mínútur við 180 C°, lækkið svo niður í 165 C°og hafið í 15 mínútur í viðbót

12

Gott er að gera súkkulaðibráðina á meðan 15 mínútur eru eftir

Súkkulaðibráð
13

Brjótið 60 gr suðusúkkulaði ofan í skál

14

Hitið svo rjómann upp að suðu

15

Hellið honum svo beint út á súkkulaðið í skálinni og látið standa stutta stund

16

Hrærið svo vel saman með gaffli eða písk þar til það er orðið þykkt og silkimjúkt og leggjið til hliðar

17

Skerið í pínulitla ferninga 50 gr af suðusúkkulaði og brjótið pekanhneturnar smátt milli fingranna

18

Hellið svo súllulaðibráðinni yfir kökuna þegar hún hefur aðeins kólnað og dreifið hnetunum og smátt skorna súkkulaðinu yfir og kælið


Kakan er best köld og því finnst mér gott að vera búin að kæla hana í nokkrar klukkustundir áður en hún er borin fram eða jafnvel gera hana kvöldinu áður, en hún er sko ekki síðri daginn eftir. Uppskrift frá Maríu hjá Paz.is

DeilaTístaVista

Hráefni

Brownie botn
 115 gr smjör
 115 gr suðusúkkulaði
 150 gr sykur
 50 gr púðursykur
 2 egg
 1 tsk vanilludropar
 1/2 tsk salt
 45 gr hveiti
 10 gr bökunarkakó frá Cadbury
Ostakakan
 450 gr Philadelphia Original rjómaostur
 2 egg
 115 gr sykur
 1 tsk vanilludropar
Súkkulaðibráð og ofan á
 60 gr suðusúkkulaði
 60 gr rjómi
 Lófafylli af pekanhnetum
 50 gr smátt skorið suðusúkkulaði eða súkkulaðidropar

Leiðbeiningar

Brownie botn
1

Byrjið á að hita ofn á 180 C°blástur

2

Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við miðlungsháan hita og hrærið stöðugt í á meðan svo brenni ekki

3

Setjið svo í hrærivélarskál og kælið í 10 mín

4

Þegar hefur kólnað í þessar 10 mín hrærið þá sykrinum öllum út í súkkulaðið með písk

5

Bætið nú 1 eggi út í í einu og hrærið með písk áfram bara létt saman

6

Sigtið næst hveiti og kakó út í blönduna og setið salt og vanilludropa saman við

7

Hrærið eins lítið saman og hægt er í handþeytara eða með písk svo kakan verði ekki seig en bara rétt þannig að hráefnin blandist saman

8

Smyrjið kringótt bökunarmót sem er 23-24 cm í þvermál og hellið deiginu ofan í

Ostakakan
9

Setjið ostinn í skál og hrærið hann upp með handþeytara

10

Bætið svo sykri, eggjum og vanilludropum saman við og þeytið þar til allt er blandað saman og orðið frauðkennt og ljóst

11

Hellið svo blöndunni yfir brownie blönduna og setjið í ofninn í 30 mínútur við 180 C°, lækkið svo niður í 165 C°og hafið í 15 mínútur í viðbót

12

Gott er að gera súkkulaðibráðina á meðan 15 mínútur eru eftir

Súkkulaðibráð
13

Brjótið 60 gr suðusúkkulaði ofan í skál

14

Hitið svo rjómann upp að suðu

15

Hellið honum svo beint út á súkkulaðið í skálinni og látið standa stutta stund

16

Hrærið svo vel saman með gaffli eða písk þar til það er orðið þykkt og silkimjúkt og leggjið til hliðar

17

Skerið í pínulitla ferninga 50 gr af suðusúkkulaði og brjótið pekanhneturnar smátt milli fingranna

18

Hellið svo súllulaðibráðinni yfir kökuna þegar hún hefur aðeins kólnað og dreifið hnetunum og smátt skorna súkkulaðinu yfir og kælið

Bökuð Brownie Turtle ostakaka

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…