fbpx

Stökkar chimichanga með nautahakksfyllingu

Skelltu þér á þessar!

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 500 g nautahakk
 1 lítill laukur, saxaður
 2 hvítlauksrif, pressuð
 1 tsk chilíduft
 ½ tsk cumin (ath ekki kúmer)
 ½ tsk oregano
 1 lítil dós refried beans
 400 g tómatmauk, ég notaði Hunts traditional premium pastasósu
 tortillakökur frá Mission
 rifinn ostur
 tannstönglar
 grænmetisolía til steikingar
Meðlæti
 salsasósa
 sýrður rjómi
 kóríander, saxað
 nachos

Leiðbeiningar

1

Léttsteikið nautahakkið á pönnu og bætið síðan lauknum saman við og steikið áfram. Bætið því næst hvítlauk, chilídufti, cumin og oregano saman við. Blandið saman og eldið í um 30 sek. Bætið því næst baunamaukinu og tómatmaukinu út á pönnuna og látið malla þar til blandan hefur þykknað töluvert.

2

Setjið fyllingu á endann og fyrir miðju á tortillakökunni og brjótið hana saman, lokið örugglega með tannstönglum. Ef tortillakökurnar eru ekki mjúkar látið þær þá í örbylgjuofn í 10-15 sek.

3

Hellið olíu á pönnu þannig að hún nái vel yfir botninn á pönnunni, hitið olíuna vel og steikið tortillurnar í 2 mínútur á hvorri hlið, fylgist samt vel með hitanum og passið að þær brenni ekki. Takið úr olíunni og leggið á eldhúspappír og þerrið.

4

Ég læt síðan ost yfir og set þær í ofn í nokkrar mínútur til að bræða ostinn en það er smekksatriði hvort þið viljið hafa hann bráðinn eða ekki.

5

Berið þessar dásamlegu chimichangas fram með sýrðum rjóma, salsasósu (ég nota medium sterka), kóríander, hrísgrjónum og/eða nachosflögum.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir