fbpx

Rækju dumplings með risarækjum, eggjanúðlum og grænmeti

Það er svo hrikalega auðvelt og einfalt að græja sér bragðgóða asíska rétti. Ég hef sagt það áður hér en mitt allra mesta uppáhald eru dumplings eða gyoza eins og það er líka kallað.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 1 poki classic prawn gyoza frá Itsu
 2 tsk olía
 200 g risarækjur soðnar
 2 hreiður eggjanúðlur frá Blue Dragon
 1 msk sesamolía frá Blue Dragon
 Nokkur brokkolí blóm skorin í bita (um 1 - 1 1/2 bolli)
 3 meðalstórar gulrætur skornar í strimla
 10 cm blaðlaukur skorinn í sneiðar
 1/2 bolli sweet chili sósa frá Blue dragon
 4 msk sojasósa frá Blue Dragon
 1 msk maizena + 1 msk vatn
 Saxaður vorlaukur, rauð paprika og ristuð sesamfræ til að toppa

Leiðbeiningar

1

Hitið vatn fyrir núðlurnar í potti.

2

Þýðið rækjurnar í sigti undir kaldri vatnsbunu.

3

Skerið grænmetið og setjið til hliðar

4

Byrjið á því að setja 2 tsk af olíu á pönnu og steikið dumplings koddana samkvæmt leiðbeiningum á pokanum

5

Setjið sesamolíu á pönnu og steikið grænmetið. Setjið rækjurnar út á pönnuna og steikið í 2 mín með grænmetinu. Hrærið saman sweet chili sósu og sojasósu í skál. Í annarri minni hrærið saman maizena og vatni. Blandið maizena blöndunni út í sósuna og hellið sósunni yfir grænmetið og rækjurnar.

6

Sjóðið núðlurnar í 5 mín.

7

Setjið saman réttinn. Setjið núðlurnar í skál. Þar yfir setjið þið rækju og grænmetisblönduna í sósunni yfir og raðið dumplings yfir. Toppið með vorlauk, papriku og ristuðum sesamfræjum.

Uppskrift frá GRGS.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir