fbpx

Ofureinföld linsusúpa sem kemur öllum á óvart

Þetta er súpan / linsurétturinn sem við munum elda í ferðalaginu í sumar! Þú þarft einn pott og hráefnið er þurrvara plús laukur og sítrón sem þarf ekki að vera í kæli, fullkomið til að taka með í langferðalagið og elda á prímusnum svo skemmir ekki hvað hún er næringaþétt og börnin mín og maðurinn minn ELSKA hana! Þegar við höfum eldað hana hér heima höfum við oftast hrísgrjón sem er hittari hjá krökkunum. Hún er ekki bara einföld heldur líka ofboðslega fljótleg.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 1 msk ólífuolía
 1 tsk cumin fræ
 1 stk lárviðarlauf
 1 stk laukur
 1 msk jurtakraftur/grænmetiskraftur, ég nota gerlausan frá Rapunzel
 2 dl rauðar lífrænar linsur, ég nota Rapunzel
 500 ml vatn (tips geyma smá til að ná öllu úr tómatflöskunni)
 1 stk flaska af lífrænni tómat passata, 425 gr.
 1 stk dós lífræn kókosmjólk frá Rapunzel
 2 tsk karrý
 0,50 stk safi úr hálfri sítrónu
 0,50 tsk jurtasalt

Leiðbeiningar

1

Byrjið á að hita ólífuolíuna og setja svo cuminfræin útí og leyfið að hitna í smá stund.

2

Bætið smátt skornum lauknum útí ásamt lárviðarlaufinu og jurtakrafti. Steikið þar til laukurinn er orðinn mjúkur, bætið pínu vatni útí pottinn ef laukurinn fer að brenna við.

3

Nú má bæta linsum, vatni, tómat passata, kókosmjólkinni og karrý útí og leyfið að malla þar til linsurnar eru orðnar mjúkar.

4

Kreistið sítrónu útí fyrir ferskleika sem er algjört lykilatriði að mínu mati. Smakkið til og saltið eftir smekk.

Verði ykkur að góðu.

MatreiðslaMatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Tær grænmetissúpaTær grænmetissúpa sem er mögulega einfaldasta súpan þarna úti. Engin krydd nema bara jurtakraftur og svo bragðið af grænmetinu sjálfu.…