fbpx

Djúsí og dökkar brownies með möndlu- & kókossmjöri

Þessar brownies eru alveg sérstaklega góðar, mjúkar, djúsí og alveg sérstaklega gott súkkulaðibragð. Kókos og möndlusmjörið frá Rapunzel gefur líka einstaklega gott bragð og bragðið af kökunum verður einhvernveginn dýpra. Þessi uppskrift er eingöngu með lífrænum hráefnum auk þess sem ég nota kókosolíu í stað þess að nota smjör. Það kemur glettilega vel út.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 1 bolli lífrænt hveiti
 1/2 bolli kakó frá Rapunzel
 1/2 tsk himalaya salt
 1 bolli cristallino sykur frá Rapunzel
 1/2 bolli bragðlaus kókosolía frá Rapunzel
 65g mjólkursúkkulaði frá Rapunzel
 65g 70% súkkulaði frá Rapunzel
 1/4 bolli kókos og möndlusmjör með döðlum frá Rapunzel
 3 lífræn egg

Leiðbeiningar

1

Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið með písk

2

Setjið kókosolíu og súkkulaðið í bitum í hitaþolna skál og bræðið saman í örbylgjuofni. Best að hita í 15-20 sek í einu og hræra á milli. Þegar olían og súkkulaðið er bráðið er því hellt út í þurrefnin. Eggjunum og kókos & möndlusmjöri er bætt út í síðast og hrært saman þar til deigið er samfellt.

3

Klæðið 20x20cm form með bökunarpappír og smyrjið deiginu í formið. Bakið í 20 mín. Varist að baka kökuna mikið lengur því hún er langbest þegar hún er blaut í sér.

4

Kælið alveg áður en hún er skorin.

Uppskrift frá Völlu.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…