fbpx

Brómberja og marzipan ískaka

Brómberja og marsipan ís með brómberjasósu.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Brómberja og marsipan ís
 6 egg aðskilin
 130gr sykur
 Fræ úr einni vanillustöng
 ½ l þeyttur rjómi
 100 gr saxað Toblerone
 200 gr Anthon Berg marzipan stykki (5 x 40gr) skorin í litla bita + 1-2 stk til skrauts
 250 gr maukuð Driscoll's brómber + meira til skrauts
 50 gr suðusúkkulaði til skrauts
Brómberjasósa
 150 ml vatn
 150 gr sykur
 125 gr Driscoll's brómber
 Smá sítrónusafi

Leiðbeiningar

Brómberja og marsipan ís
1

Þeytið saman eggjarauður og sykur þar til létt og ljóst.

2

Bætið vanillunni út í og blandið vel.

3

Vefjið þeytta rjómanum því næst varlega saman við eggjarauðublönduna.

4

Setjið saxað Toblerone og marzipanbitana saman við.

5

Stífþeyttum eggjahvítum því næst vafið vel saman við með sleikju.

6

Að lokum er maukuðum berjum blandað út í, varist að blanda of vel, fallegt að hafa marmaraáferð á berjablöndunni í ísnum.

7

Öllu hellt smelluform um 22 cm í þvermál.

8

Plastið ísinn vel og frystið helst í sólarhring og berið síðan fram með þeyttum rjóma og brómberjasósu.

9

Skreytið með bræddu suðusúkkulaði, berjum og niðurskornu marzipanstykki.

Brómberjasósa
10

Setjið vatn, sykur og brómber saman í pott og sjóðið við vægan hita í um 10 mínútur og kremjið berin vel.

11

Sigtið þá berin frá, setjið smá sítrónusafa saman við og kælið. Sósan þykknar örlítið við að kólna og berið hana fram með ísnum ásamt þeyttum rjóma.

Uppskrift frá Gotterí og gersemar, Berglind Hreiðarsdóttir.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
SmjördeigshjörtuÞað getur verið svo ljúft að baka eitthvað sem er ofureinfalt en á sama tíma ljúffengt og fallegt. Þessi uppskrift…
MYNDBAND
JarðaberjarósirJarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn 🌹🥂 Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem…
MYNDBAND
JarðaberjabollurEinfaldar og bragðgóðar vatnsdeigsbollur fylltar með jarðarberjarjóma og toppaðar með hvítu súkkulaði. Hér eru notuð bragðgóðu jarðarberin frá Driscolls í…