fbpx

“1001 nótt” smoothie skál

Það eru örugglega einhverjir sem þekkja nafnið en þessi smoothie skál er innblásin af smoothie af matseðlinum hjá ísey skyrbar. Þetta er smoothie sem er vinsæll á heimilinu en það getur verið dýrt að kaupa tilbúinn smoothie fyrir 4 manna fjölskyldu oft í mánuði. Ísey notar eplasafi úr kreistum eplum í smoothie-inn en til einföldunar höfum við hér heima haldið okkur við eitt eldhústæki til að græja fram þennan smoothie og notað heila appelsínu í staðinn fyrir eplasafa og það kemur alls ekki niður á bragðinu. Það getur auðvitað verið ótrúlega þægilegt og fljótlegt að kaupa sér tilbúna smoothieskál á ferðinni en það eru allskonar kostir sem fylgja því að gera sér smoothieskál heima, það er bæði ódýrara en einnig gefur það svigrúm til að velja hráefnið og gera t.d. lífrænni útgáfu eins og hér að neðan og þú getur toppað skálinu með þínu eftirlæti.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Smoothie skál
 2 dl frosið mangó
 1 dl frosinn ananas
 ¾ dl lífrænar möndlur frá Rapunzel
 6 stk döðlur (ég nota ferskar sem þarf að steinhreisa)
 1 stk banani
 appelsína
 1 dl möndlumjólk (eða meira ef þú vilt drekka hann með röri)
 1 msk væn msk af lífrænu hnetusmjöri frá Rapunzel
 nokkur saltkorn
Tillaga að toppings
 banani
 appelsína
 hnetusmjör frá Rapunzel
 dökkt súkkulaði frá Rapunzel
 carob duft frá Rapunzel
 poppað quinoa frá Rapunzel

Leiðbeiningar

1

Öllu hráefni er komið fyrir í blender og blandað þar til áferðin er orðin jöfn og slétt.

2

Berið fram í skál og toppið með því sem þér þykir gott.

Verði ykkur að góðu.


Matreiðsla, , MatargerðMerking

DeilaTístaVista

Hráefni

Smoothie skál
 2 dl frosið mangó
 1 dl frosinn ananas
 ¾ dl lífrænar möndlur frá Rapunzel
 6 stk döðlur (ég nota ferskar sem þarf að steinhreisa)
 1 stk banani
 appelsína
 1 dl möndlumjólk (eða meira ef þú vilt drekka hann með röri)
 1 msk væn msk af lífrænu hnetusmjöri frá Rapunzel
 nokkur saltkorn
Tillaga að toppings
 banani
 appelsína
 hnetusmjör frá Rapunzel
 dökkt súkkulaði frá Rapunzel
 carob duft frá Rapunzel
 poppað quinoa frá Rapunzel

Leiðbeiningar

1

Öllu hráefni er komið fyrir í blender og blandað þar til áferðin er orðin jöfn og slétt.

2

Berið fram í skál og toppið með því sem þér þykir gott.

Verði ykkur að góðu.

“1001 nótt” smoothie skál

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Suðrænn smoothieSuðrænn og smoothie úr aðeins 3 hráefnum úr smiðju Hildar Ómars. Einfaldara og ferskara verður það varla.