Við elskum ferskt guacamole og hér höfum við örlítið sterkari útgáfu af dásamlegu guacamole!

Uppskrift
Hráefni
5-6 lítil avókadó
150 g piccolo tómatar
1/2 rauðlaukur
1 lúka af kóríander
1 stk lime
2 msk Tabasco sósa
Salt og pipar eftir smekk
Leiðbeiningar
1
Stappið avókadó, skerið niður tómata og saxið lauk og kóríander.
2
Setjið allt saman í skál, kreistið lime yfir og blandið saman með Tabasco sósunni og kryddi eftir smekk.
3
Njótið með nachos flögum eða öðru sem ykkur þykir gott.
Hráefni
5-6 lítil avókadó
150 g piccolo tómatar
1/2 rauðlaukur
1 lúka af kóríander
1 stk lime
2 msk Tabasco sósa
Salt og pipar eftir smekk