Einfaldur og bragðgóður rækjuréttur með asísku ívafi.

Uppskrift
Hráefni
600 g risarækjur
1 rautt chilí
3 hvítlauksrif
1/2 púrrulaukur
1/2-1 pakki sykurbaunir
10 sveppir
2 msk soyasósa frá Blue Dragon
1 msk sweet chilísósa frá Blue Dragon
2 msk ólífuolía
furuhnetur
salt og pipar
Leiðbeiningar
1
Skerið grænmetið niður.
2
Hitið olíu á pönnu og steikið grænmetið í stutta stund við háan hita. Bætið soya- og chilísósunni saman við. Takið af pönnunni og geymið.
3
Setjið olíu á pönnuna og steikið hvítlauk, chilí og risarækjurnar saman í 1-2 mínútur.
4
Bætið grænmetisblöndunni saman við og hitið saman í 1 mínútur. Bætið furuhnetum saman við.
5
Mér finnst gott að bera réttinn fram með steiktum hrísgrjónum. Þá sýð ég hrísgrjón og læt 2-3 egg á pönnu og hræri þeim saman. Bæti svo hrísgrjónunum saman við og hita saman í 1-2 mínútur. En einnig hægt að bera réttinn fram með fersku salati.
Uppskrift frá GRGS.
MatreiðslaFiskréttirTegundAsískt
Hráefni
600 g risarækjur
1 rautt chilí
3 hvítlauksrif
1/2 púrrulaukur
1/2-1 pakki sykurbaunir
10 sveppir
2 msk soyasósa frá Blue Dragon
1 msk sweet chilísósa frá Blue Dragon
2 msk ólífuolía
furuhnetur
salt og pipar