Fullkomin leið til að elda steikta andabringu um hátíðirnar.

Uppskrift
Hráefni
Valette andabringur
Grænmeti að eigin vali
Salt og pipar
Leiðbeiningar
1
Best er að byrja á að snyrta bringurnar með því taka sinar og snyrta fituna. Skerið svo rákir í fituna á öndinni án þess að skera í kjötið.
2
Því næst skal hita pönnu og byrja að steika bringurnar á fituhliðinni en hafið ekki of háan hita á pönnunni því þá brennur fitan, hún á bara að verða vel crispý. Gott er að fleyta alla umfram fitu af pönnuni meðan á steikingunni stendur, geyma fituna og nota seinna til að steikja grænmeti.
3
Steikið andabringurnar í um það bil 6 mínútur á fitunni og snúið svo við og steikið í 2 mínútur.
4
Kryddið með salti og pipar.
5
Setjið í heitan ofninn í 8-10 mín við 180 gráður.
6
Látið standa í 15 mínútur áður en þið skerið andabringurnar.
Uppskrift frá Vigdísi Ylfu Hreinsdóttur
MatreiðslaKjötréttir
Hráefni
Valette andabringur
Grænmeti að eigin vali
Salt og pipar