fbpx

Sykurlaust eplapæ

Sykurlaust eplapæ borið fram með óþeyttum vegan rjóma. Þetta pæ hefur þónokkrum sinnum komið með í picnic í góðu veðri. Útivera er bara svo miklu skemmtilegri með gott nesti. Uppskriftin passar í stærri gerðina af glernestisboxunum úr ikea sem mega fara í ofn. Það er því auðvelt að grípa það með sér beint úr ofninum með því að smella lokinu á og setja í nestistösku. Það má auðvitað líka borða þetta inni í kósí. Nokkrar döðlur, bakaður kókos og eplin sjálf eru svo náttúrulega sæt að þetta pæ getur svo sannarlega fullnægt allri sykurlöngun og hentar vel fyrir litla og stóra munna.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 4 stk lífræn epli
 510 g smjörlíki
 1 msk kanill
 2 dl lífrænir hafrar frá Rapunzel
 2 dl lífrænt kókosmjöl frá Rapunzel
 8 stk ferskar mjúkar döðlur
 60 g smjörlíki
 Hnífsoddur salt

Leiðbeiningar

1

Byrjið á að hita ofninn í 175°C

2

Brytjið eplin smátt og dreifið kanil yfir þau ásamt 5-10g af mjúku eða bráðnuðu smjörlíki og blandð vel.

3

Setjið eplin í eldfast mót og komið fyrir inní ofni á meðan þið útbúið haframulninginn, eða u.þ.b 5 mínútur.

4

Útbúið haframulninginn með því að byrja á að steinhreinsa döðlurnar og setja svo hafra, kókos, döðlur, smjörlíki og salt í matvinnsluvél. Blandið öllu vel saman.
Ath. einnig er hægt að saxa döðlurnar smátt og blanda öllu saman með gaffli/höndunum ef þú hefur ekki aðgang að matvinnsluvél.

5

Setjið haframulninginn ofan á eplin og bakið í ofni á 175°C í 20 mínútur.

6

Berið fram með óþeyttum eða þeyttum vegan þeytirjóma, ég kýs Oatly VISP.

Matreiðsla, MatargerðMerking

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…