fbpx

Pestópasta með kjúklingi

Eftir mikið af grillmat, út að borða og alls konar sukki í fríinu kallaði pasta á mig sem fyrsta uppskrift sem ég eldaði hér heima! etta var hrikalega góður réttur og ungir sem aldnir borðuðu vel.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 3 stk kjúklingabringur frá Rose
 500 g De Cecco spaghettí
 3 stk hvítlauksrifrifin
 300 g kirsuberjatómatar
 150 g grænt pestó frá Filippo Berio
 3 msk basilika söxuð
 Salt, pipar, hvítlauksduft
 Ólífuolía til steikingar
 1 stk Burrata ostur

Leiðbeiningar

1

Skerið kjúklingabringurnar í bita, steikið upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk, geymið.

2

Sjóðið næst spaghetti á meðan annað er undirbúið.

3

Steikið næst tómatana í olíu við meðalhita í um 5 mínútur, bætið hvítlauknum við síðustu mínútuna og leggið til hliðar á disk.

4

Setjið næst pestó og basiliku á pönnuna og blandið saman þar til heitt.

5

Hellið síðan öllu saman á pönnuna með pestóinu, kjúkling, spaghetti og tómötum og blandið létt saman.

6

Toppið að lokum með ferskum burrata osti og basilikulaufum og berið fram með góðu hvítlauksbrauði.

7

Pestópasta og hvítvín er fullkomin tvenna!

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir