fbpx

Kryddlegin nautaspjót með chimichurri

Hér kemur ein dásamleg uppskrift, það má alltaf grilla hvort sem það er sól, rigning eða snjór.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 900 g ungnautafile (annað svipað nautakjöt)
 6 msk Caj P original grillolía
 6 msk Caj P hvítlauks grillolía
 Chimichurri (sjá uppskrift)
 Rósmarínkartöflur (sjá uppskrift)
 Ristaðar furuhnetur
 Klettasalat
Chimicurri uppskrift
 200 ml jómfrúarólía (extra virgin)
 2 msk rauðvínsedik
 1 stk búnt af steinselju (t.d í potti)
 ½ stk búnt af kóríander (t.d í potti)
 3 stk hvítlauksrif
 ½ stk sítróna (safinn)
 1 stk skalottlaukur
 1 stk rautt chilli
 2 msk oregano krydd
Rósmarínkartöflur uppskriftir
 700 g soðnar kartöflur
 100 g smjör
 2 msk rósmarín (ferskt - saxað)
 salt, pipar, hvítlauksduft

Leiðbeiningar

1

Skerið nautakjötið í þunnar ílangar sneiðar (um ½ cm á þykkt) og leggið í skál með grillolíunum. Blandið öllu vel saman og leyfið að standa eins lengi og hægt er. Það má samt alveg grilla samstundis en bragðið verður enn betra ef kjötið fær aðeins að hvíla í leginum, þessvegna yfir nótt.

2

Hitið grillið upp í háan hita, þræðið nautakjötið upp á tein og grillið. Gott er að nota smá Pam matarolíusprey á hreint grillið, hafa það við háan hita og grilla kjötið stutt á hvorri hlið eða eftir því hversu vel þið viljið hafa það eldað.

3

Setjið klettasalt á fat, raðið nautaspjótunum ofan á, setjið vel af chimichurri yfir ásamt furuhnetum og berið fram með rósmarínkartöflum.

Chimichurri
4

Saxið allt mjög smátt (steinselju, kóríander, hvítlauk,lauk og chilli).

5

Setjið önnur hráefni saman við og blandið vel saman, saltið og piprið eftir smekk og geymið í kæli fram að notkun.

Rósmarínkartöflur
6

Bræðið smjörið og bætið soðnum kartöflum á pönnuna.

7

Kryddið eftir smekk og steikið við meðalháan hita þar til þær fara aðeins að brúnast.

MatreiðslaMerking,

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir