fbpx

Jarðaberjatré

Ljúffengur og fallegur eftirréttur.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 7 x 250gr öskjur af Driscoll‘s jarðaberjum (1750gr)
 700-800gr dökkt súkkulaði (ég notaði TOM‘s 70% í þetta skiptið)
 80gr hvítt súkkulaði
 Keila úr korki, um 30cm há
 Tannstönglar, álpappír og bökunarpappír

Leiðbeiningar

1

Bræðið dökka súkkulaðið. Ég bræddi í skál og hellti svo ákveðnu magni í einu yfir í lítið glas til að ná að dýfa berjunum vel niður án þess að þurfa að halla þeim.

2

Dýfið jarðaberjunum vel ofan í svo þau hjúpist nánast að fullu. Leyfið að leka vel af þeim (best ef þið hafið þolinmæði í að þau storkni nánast alveg).

3

Raðið berjunum á bakka (með bökunarpappír undir) og kælið.

4

Bræðið þá hvíta súkkulaðið, setjið í sprautupoka og klippið lítið gat á endann, rennið því fram og til baka yfir berin til að skreyta þau, kælið að nýju.

5

Klæðið keiluna með álpappír og takið til tannstöngla.

6

Stingið tannstöngli í keiluna og rennið beri upp á hann. Gott er að setja stærri berin neðst, svo þau miðlungs og nota síðan þau minnstu efst á keiluna.

7

Reynið að raða eins þétt og þið getið en erfitt er þó að koma í veg fyrir að eitthvað sjáist í álpappírinn en það er líka allt í lagi.

8

Ef þið viljið hafa stjörnu á toppnum er hægt að sprauta hvítu súkkulaði í stjörnulaga piparkökuform með bökunarpappír undir og frysta þar til hún storknar. Stingið síðan tannstöngli í stjörnuna og komið henni fyrir efst á keilunni.

Uppskrift frá Berglindi á Gotterí og gersemar.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
SmjördeigshjörtuÞað getur verið svo ljúft að baka eitthvað sem er ofureinfalt en á sama tíma ljúffengt og fallegt. Þessi uppskrift…
MYNDBAND
JarðaberjarósirJarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn 🌹🥂 Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem…
MYNDBAND
JarðaberjabollurEinfaldar og bragðgóðar vatnsdeigsbollur fylltar með jarðarberjarjóma og toppaðar með hvítu súkkulaði. Hér eru notuð bragðgóðu jarðarberin frá Driscolls í…